Aukið íbúalýðræði
- Íbúakosning fari fram um einstök málefni óski 10% kosningabærra íbúa eftir því eða tveir fulltrúar í bæjarstjórn
- Verði máli vísað í íbúakosningu fari fram hlutlaus og fagleg kynning á því máli sem um ræðir
- Aukin umræða um málefni bæjarins og hlustað verði á sjónarmið íbúa
- Íbúar hafi jafnan rétt til áhrifa á umhverfi sitt og skipulagsmál
- Hagsmunum heildarinnar verði ekki fórnað fyrir sérhagsmuni
Fagleg, heiðarleg og gegnsæ stjórnsýsla
- Skipað verði í nefndir á faglegum forsendum
- Virkar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa
- Aðgengileg heimasíða og virk upplýsingagjöf
- Íbúar hafi aðgang að öllum samningum sem bærinn gerir
- Fundir nefnda, bæjarráðs og bæjarstjórnar verði sendir út á netinu og hljóðskrár aðgengilegar á netinu.
- Öllum erindum til bæjarins verði svarað
- Íbúar geti lagt mat á stjórnsýslu
Valddreifing
- Skilja á milli framkvæmdavalds (bæjarstjóra) og löggjafarvalds (kjörinna fulltrúa)
- Efsti maður á lista er ekki bæjarstjóraefni
- Fagleg ráðning bæjarstjóra á hóflegum kjörum
- Skýrar reglur um verkaskiptingu kjörinna fulltrúa og embættismanna
- Reglur verði settar um að fulltrúar í bæjarstjórn sitji ekki lengur en tvö kjörtímabil
Ábyrg fjármálastefna
- Skýr og skynsöm forgangsröðun
- Grunnþjónusta við íbúa í fyrsta sæti
- Hófleg gjaldtaka
- Bæjarfélagið beiti sér í baráttunni við skuldavanda heimila og fyrirtækja
Réttlæti og jafnrétti
- Sérstaklega verði hugað að stöðu atvinnuleitenda og tekjulægri hópa
- Menntun og velferð allra barna tryggð
- Hvers kyns mismunun hafnað
- Grundvallarmannréttindi tryggð