Nýr formaður
Hildur Margrétardóttir var kosin formaður stjórnar Íbúahreyfingarinnar á aðalfundi 26. janúar. Aðrir í stjórn eru Jón Sævar Jónsson gjaldkeri, Hjördís Arnardóttir Bjartmars ritari, Kristín I Pálsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir meðstjórnendur. Í varastjórn eru Gunnlaugur Johnson og Úrsúla Jünemann. Hildur er myndlistarmaður og kennari, ásamt því að leggja stund á stjórnunarnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands og uppeldis- og kennslufræði Rudolfs Steiners við Waldorfháskólann í Stokkhólmi.
Hildur tekur við góðu búi af Birtu Jóhannesdóttur sem verið hefur formaður Íbúahreyfingarinnar frá árinu 2011. Á fundinum voru samþykktar breytingar á samþykktum Íbúahreyfingarinnar, sjá hér.
Hildur er einn af stofnendum Íbúahreyfingarinnar og á hún sæti í fræðslunefnd og menningarmálanefnd Mosfellsbæjar.
Netfang nýs formanns er: hildur@hildur.com