by ibuahreyfingin | 17 Jun, 2010 | Fréttir
Langar þig að hafa áhrif á gang mála í Mosfellsbæ?
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ leggur áherslu á að skipað verði í nefndir á faglegum forsendum. Því auglýsir Íbúahreyfingin eftir aðal- og varafulltrúum í eftirtaldar nefndir:
Fræðuslunefnd
Íþrótta og tómstundanefnd
Menningarmálanefnd
Íbúahreyfingin leitar eftir fólki sem hefur menntun, reynslu og/eða mikinn áhuga á málefnum þeirrar nefndar sem sótt er um starf í. Umsækjendur eru beðnir að senda inn rökstudda umsókn ásamt ferilskrá á netfangið ibuahreyfingin@ibuahreyfingin.is fyrir mánudaginn 28. júní 2010.
Íbúahreyfingin vill taka fram að það er engin hindrun að umsækjendur starfi, eða hafi starfað, með öðrum stjórnmálasamtökum. Íbúahreyfingin gerir þá kröfu til umsækjenda að þeir séu reiðubúnir að starfa af heilindum fyrir íbúa Mosfellsbæjar og hafi áhuga á þeim áherslum sem Íbúahreyfingin leggur upp með.
Nánari upplýsingar veitir Kristín I. Pálsdóttir í síma 893 9327.
by ibuahreyfingin | 17 Jun, 2010 | Fréttir
Bókun fulltrúa M lista varðandi ráðningu bæjarstjóra Mosfellsbæjar á fundi bæjarstjórnar þann 16. júní 2010
Eftirfarandi má lesa á heimasíðu Mosfellsbæjar um stefnur gildi og framtíðarsýn: „Þegar Haraldur Sverrisson tók við sem bæjarstjóri haustið 2007 var eitt hans fyrsta verkefni að leggja til við bæjarráð að hafin yrði vinna við stefnumótun hjá Mosfellsbæ með það að markmiði að gera gott bæjarfélag enn betra enda sé það frumskylda bæjaryfirvalda hverju sinni að spyrja spurninga um það hvort unnið sé í samræmi við stefnu sem stuðlar að bættum hag og velferð bæjarbúa.“
Í þessum anda var mannauðsstefna Mosfellsbæjar skrifuð síðar. Í henni segir: „Starfsmenn Mosfellsbæjar eru ráðnir á grundvelli reynslu, hæfni, menntunar og hæfileika til að takast á við starfið. Laus störf skulu auglýst á opinberum vettvangi og til að tryggja sanngirni og fagmennsku skulu allar ráðningar hjá Mosfellsbæ byggjast á samræmdu ráðningarferli. Kjör starfsmanna taka mið af kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga.”
Með vísan til mannauðsstefnu Mosfellsbæjar var lögð fram tillaga á fundi bæjarstjórnar um að staða bæjarstjóra yrði auglýst og starfskjör endurskoðuð. Því miður fór svo fyrir tillögunni að henni var hafnað af sitjandi meirihluta. Ætlun meirihlutans að ráða bæjarstjóra á pólitískum forsendum, án auglýsingar, gengur þvert gegn mannauðsstefnu Mosfellsbæjar. Það er slæmt fordæmi og vanvirðing við faglega stjórnsýslu.
Þórður Björn Sigurðsson
by ibuahreyfingin | 16 Jun, 2010 | Fréttir
Yfirlýsing frá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ vegna fréttatilkynningar frá Mosfellsbæ:
Í dag sendi kynningarfulltrúi Mosfellsbæjar út fréttatilkynningu um áframhaldandi meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Mosfellsbæ. Í tilkynningunni er greint frá hugmyndum meirihlutans um aðkomu minnihlutans að stjórn bæjarins og látið að því liggja að vegna afstöðu Íbúahreyfingarinnar hafi ekki getað orðið af samstarfi.
Hugmyndir meirihlutans fólust meðal annars í því að öll framboð í bæjarstjórn myndu leggja fram sameiginlega fjárhagsáætlun. Íbúahreyfingin tók vel í þá hugmynd og lagði til á grundvelli hennar að mynduð yrði samstjórn allra framboða um rekstur bæjarins því fjárhagsáætlun væri grundvallarplagg hvað varðar stefnumörkun í rekstri sveitarfélagsins. Næðist ekki samstaða um samstjórn lýsti Íbúahreyfingin sig engu að síður jákvæða gagnvart hugmyndum meirihlutans með ákveðnum breytingum. Ekki var tekið vel í hugmyndir Íbúahreyfingarinnar af hálfu Sjálfstæðisflokksins og því strönduðu viðræður um samvinnu.
by ibuahreyfingin | 13 Jun, 2010 | Fréttir
Boðað til fyrsta íbúafundar Íbúahreyfingarinnar á mánudagskvöld, annað kvöld, kl. 20.30 í Brekkunni, Álafosssvegi 27. Fundurinn er öllum opinn og efni fundarins er næsti bæjarstjórnarfundur.
by ibuahreyfingin | 9 Jun, 2010 | Fréttir
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ þakkar stuðninginn sem framboðið fékk í sveitarstjórnarkosningum. Einn fulltrúi er nú í bæjarstjórn og Íbúahreyfingin er annað stærsta stjórnmálaaflið í Mosfellsbæ, aðeins um mánuði eftir að stofnað var til framboðsins.
Það er athyglisvert að kjörsókn í Mosfellsbæ var aðeins 68% og að í raun kusu aðeins 31.45% kosningabærs fólks Sjálfstæðisflokkinn, sem nú fer með meirihlutavald í bæjarstjórn.
Varla er hægt að ímynda sér erfiðara hlutverk en að vera í hagsmunagæslu fyrir bæjarbúa undir þeim kringumstæðum sem þessi kosningaúrslit færðu okkur íbúunum. Það er þó verkefnið og því munum við sinna og vonandi með hjálp bæjarbúa.
Íbúahreyfingin lítur á það sem sitt helsta verkefni að virkja íbúa Mosfellsbæjar til þátttöku í mótun samfélagsins, með þau verkfræri sem við höfum, og býður alla sem áhuga hafa á lýðræðisumbótum, jafnrétti og jöfnuði til samstarfs.
Íbúahreyfingin mun beita sér fyrir lýðræðislegum stjórnarháttum og þar sem hinir flokkarnir lögðu líka áherslu á lýðræðisumbætur ættu að vera hæg heimatökin að fylgja því fast eftir.
by ibuahreyfingin | 28 May, 2010 | Fréttir
Ég starfa við endurhæfingu, heilsueflingu og endurreisn, því er lýðheilsa mér hugleikin. Jákvæð líðan er uppbyggjandi afl, bæði andlega og líkamlega. Samfélag þar sem íbúar eru virkjaðir til samráðs og þátttöku á lýðræðisleg um vettvangi eflir áþreifanlega jákvæðni, samhug og heilsu. Í gegnum störf mín hef ég kynnst þversniði af íslensku þjóðinni og hinn mikli mannauður sem við eigum í hverjum einstaklingi verður mjög áþreifanlegur á þeim vettvangi.
Í Mosfellsbæ búa um 8500 manns og er ljóst að þar er hin sanna auðlind okkar falin í uppsafnaðri reynslu, þekkingu og menntun. Við hjá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ höfum það markmið að virkja þann mannauð sem samfélag okkar býr yfir og við teljum að lýðræðisumbætur þær sem gömlu flokkarnir boða með ósannfærandi hætti, muni ekki raunbirtast í náinni framtíð. Virkt lýðræði, samráð og samskipti íbúa er lykillinn að heilbrigðu samfélagi og krafa nútíma þjóðfélags.
Hrun það sem við Íslendingar erum að horfast í augu við er afleiðing úreltra stjórnarhátta. Þessu verðum við að breyta og það gerist ekki nema við sem áður treystum flokksvélunum rísum upp, gefum fortíðinni frí og tökum í taumana. Sjálfstæðisbarátta okkar Íslendinga var og er baráttalýðræðis og sjálfsákvörðunarréttar.
Sjálfstæðisbaráttan í dag er gegn breiskleikum og þrá mannsins í auð og völd sem kristallast í fornum hagsmunavélum sem nú berjast við að halda lífi í sjálfum sér þrátt fyrir að hafa algerlega brugðist og skilið okkur eftir með risa vaxið endurreisnarverkefni til langrar framtíðar.
Ég treysti þeim ekki lengur og tel að hinar gömlu flokksvélar eigi ekki erindi í bæjarmálin. Ég vil virkt lýðræði, samhug og samkennd, ég vil að mannauður okkar verði virkjaður í Mosfellsbæ, ég vil taka þátt í að byggja nýja og betri framtíð, ég vil nýtt Ísland og nýtt Ísland hefst í heimabyggð. Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ er ágætis byrjun. xM
Guðbjörg Pétursdóttir