Landsnet fundar um styrkingu Brennimelslínu í Mosfellsbæ

Landsnet fundar um styrkingu Brennimelslínu í Mosfellsbæ

Screen Shot 2017-01-19 at 12.19.43Hér á eftir fer gróf lýsing á því sem fram kom á fundi bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ með Landsneti 18. janúar sl.
Landsnet hyggst auka flutningsgetu Brennimelslínu 1 og hafa fulltrúar fyrirtækisins nú kynnt hugmyndir sínar fyrir bæjaryfirvöldum. Fundurinn var liður í undirbúningi verkefnisins en línulagnir geta haft víðtæk áhrif á landslag og ásýnd svæða, virði lands, fuglalíf, vatnsból og annað lífríki. Náið samráð er því mikilvægt við þau sveitarfélög sem línan fer um.
Fyrirhuguð lína, Brennimelslína, mun liggja í um 40 m fjarlægð frá eldri og aflminni línu sem tekin verður niður og nefnist Brennimelslína 1. Möstur nýju línunnar eru allt að 4 m hærri en gömlu línunnar, auk þess sem haftið á möstrunum víkkar í allt að 36 m. Á móti kemur að möstrum fækkar þar sem vegalengd milli þeirra lengist. Flutningsgeta línunnar verður 400 kV í stað 220 kV áður. 
Brennimelslína mun liggja frá tengivirki við Lyklafell í landi Mosfellsbæjar, um Mosfellsheiði austan Grímannsfells, niður Kjósarskarð, yfir Hvalfjörð að Þyrli og þaðan að Brennimel í Hvalfirði þar sem hún tengist Sultartangalínu 3. Á sömu slóðum eru stóriðjufyrirtæki á Grundartanga.
Screen Shot 2017-01-19 at 12.22.40
Tilgangur verkefnisins er að sögn fulltrúa Landsnets að gera raforkukerfið á suðvesturhorninu afkastameira og tryggara. Einnig að tengja vestari hluta landsins betur við rafmagn.
Landsnet mun bera saman 3 valkosti:
A. Gömlu Brennimelslínuna sem liggur frá Geithálsi framhjá Hafravatni og þaðan áfram um Mosfellsheiði í Hvalfjörð en fyrirhugað er að taka þá línu niður ef nýja Brennimelslínan  (valkostur C) verður ofan á. Gamla línan er merkt með hvítum lit og liggur að stórum hluta samhliða rauðu línunni. Satt best að segja væri góður kostur fyrir Mosfellinga að losna við Geithálstengingu Brennimelslínu úr bæjarlandinu.
B. Jarðstrengur um Mosfellsbæ, Kjalarnes og Hvalfjörð. Blár litur.
C. Aflmeiri Brennimelslína sem lýst er hér að ofan. Rauður litur. Hún liggur ekki að Geithálsi.
Umræður á fundinum
Nú er ljóst að stóriðjufyrirtæki nota um 80% af því rafmagni sem framleitt er á Íslandi, heimilin um 6-10%. Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar spurði því hvort fyrirhugað kísilver á Grundartanga kallaði á meiri flutningsgetu kerfisins, þ.e. þessa aukningu. Svarið var já og nei en einnig eitthvað á þá leið að þar sem jarðskjálftar eru tíðir væri líka nauðsynlegt að rafmagn gæti borist eftir fleiri en einni leið hvert svo sem það færi. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd mynda Sultartangalína 3, Búrfellslína 3 og Brennimelslína 1 hringekju, þ.e. ef Sultartangalína 3 dettur út fær suðvesturhornið og Vesturland rafmagn í gegnum Búrfellslínu 3 og Brennimelslínu eða öfugt.
Í ljósi þess hvað stóriðjan er stór notandi spurði Íbúahreyfingin einnig hver kostnaðarhlutdeild hennar væri í svo dýru verkefni. Það svar fékkst að hún greiðir fyrir rafmagn aðeins sem notandi, þ.e. stórnotandi en þeir greiða lægra verð en önnur fyrirtæki og heimili í landinu.
Fleiri fundir sveitarstjórnarfólks í Mosfellsbæ verða með Landsneti um Brennimelslínu. Einnig tengivirki við Lyklafell þar sem Brennimelslína, Búrfellslína 3 og Sandskeiðslína 2 (sem er hluti af Suðvesturlínu) mætast. Sá fundur er fyrirhugaður 31. janúar.
Gagnlegt væri að fá að vita hvað þið, Mosfellingar góðir, hafið um þessi mál að segja.
Tölvupóstur Íbúahreyfingarinnar er ibuahreyfingin@ibuahreyfingin.is
Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi
—————————
Hér til viðbótar ein mynd sem sýnir gömlu Brennimelslínu, valkost A, sem er hvítur  og nýju, valkost C, sem er rauður.
Valkostir A og C
Myndirnar eru í fylgigögnum Landnets.
Opinn fundur um Þingvallaveg – gróf samantekt

Opinn fundur um Þingvallaveg – gróf samantekt

Screen Shot 2017-01-16 at 19.42.05Umferðarhraði á Þingvallavegi í Mosfellsdal hefur lengi verið til umræðu í Mosfellsbæ. Íbúar í dalnum hafa verið uggandi og heitar umræður verið um hvernig draga megi úr umferðarhraða. Í dag, mánudaginn 16. janúar, hélt Mosfellsbær, opinn fund með íbúum um deiliskipulag vegarins sem  nú er í auglýsingu. Tillagan gengur út á að gera tvö hringtorg, eitt við Æsustaðaafleggjara og hitt við Helgadalsveg. Lega beggja hringtorga er umdeild og komu íbúar athugasemdum sínum á framfæri á fundinum.

Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar gerði grófa samantekt á umræðum á fundinum og er öllum frjálst að bæta við hafi eitthvað gleymst sem mikilvægt er að komi fram.

Glósur opinn fundur um Þingvallaveg á Bókasafni Mosfellsbæjar kl. 17.00 mánudaginn 16. janúar 2017

Upphaf fundar, formaður skipulagsnefndar: 
Það er skoðun bæjarstjórnar að ástandið á Þingvallavegi í Mosfellsdal sé óásættanlegt. Vegagerðin er tilbúin til að bæta úr því. Engar hugmyndir eru uppi um tvíbreiðan veg. Málið snýst um öryggi. Haft hefur verið samband við hagsmunaaðila og vitað að það eru skiptar skoðanir.
28. janúar rennur út frestur til að skila inn athugasemdum. Mjög mikilvægt að þær berist á réttum tíma. Annars gerist ekkert. Senda á: olafurm@mos.is
Íbúi 1: Engin tenging við Gljúfrastein.  Mikilvægt að það sé ljóst segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Bryndís, formaður sk.nefndar: Verður leyst innan þess deiliskipulags sem gert verður í kringum Gljúfrastein. Möguleg aðkoma frá Helgadalsvegi.
Íbúi 2: Æsustaðaafleggjari mjög óheppilegur fyrir hringtorg. Virðist sem stuðst hafi verið við úrelt rammaskipulag. Stórt hús í veginum við Æsustaðaafleggjara. Komin stór bygging þar sem Björk var áður. Upphaflegar tillögur skynsamlegri en þeim hefur verið breytt.
Íbúi 3: Var það kirkjan sem breytti upphaflegum áætlunum? Er vilji hjá Mosfellsbæ til að breyta skipulaginu?
Bryndís, formaður sknefndar: Rétt að staðsetning var önnur á upphaflegum teikningum. Kirkjan var ósátt. Mos ekki á móti breytingum en umferðaröryggi í forgang.
Íbúi 3: Hver eru rök kirkjunnar? Vorum sátt við upphaflegar tillögur en allt í einu breyttist þetta. …
Íbúi 4: Þarf að færa hringtorgið upp fyrir brekkuna á heiðinni á móts við Grænuborg. Nægir ekki að hafa hringtorg fyrir neðan brekkuna. Mikill ökuhraði í brekkunni. Þarf að hægja á fyrr.
Íbúi 5: Umferð eykst til muna á Æsustaðavegi ef hringtorgið verður staðsett á afleggjaranum. Mikið af börnum býr við Æsustaðaveg og hætta samfara hringtorgi þarna.
Íbúi 6: Mikilvægt að setja undirgang eða brú yfir Þingvallaveg á þessum slóðum. Mikill samgangur í dalnum.
Íbúi 7: Er ekki ástæða til að færa Þingvallaveg annað? Verið að eyðileggja það sem íbúarnir í Mosfellsdal hafa varið árum í að byggja upp. Önnur leið fær. Vegstæði gamla Þingvallavegarins. 17 km leið þar sem fyrir er undirlag.
Bryndís, formaður sk.nefndar svarar því til að ekki sé verið að eyðileggja neitt. Bæjaryfirvöld séu að hugsa um öryggi vegfarenda.
Íbúi 8: Af hverju eru ekki allir tengdir hringtorgum. Ótal stútar/afleggjarar við veginn beggja vegna hringtorga. …
Sigrún Páls spyr af hverju vegakerfið í dalnum sé ekki skipulagt sem ein heild? Ekki ólíklegt að vegtengingar innansveitar eigi eftir að hafa áhrif á staðsetningu hringtorga. Því mikilvægt að skoða heildarmyndina. Óskynsamlegt að staðsetja hringtorgin án tillits til framtíðarskipulags. Íbúar líka uggandi um framhaldið.
Stútarnir líklegir til að stórauka slysahættu, sbr. slysið sem varð nýverið á Grindavíkurafleggjara við stútinn að Bláa lóninu.
Bryndís, formaður sk.nefndar: Vegagerðin telur að stútarnir auki ekki slysahættu. Það gæti tafið framkvæmdir að skipuleggja allar vegtengingar innansveitar. Ríður á að hefja framkvæmdir sem fyrst til að tryggja öryggi.
Að lokum! Er einhver á móti upphaflega skipulaginu spyr Bryndís?
Íbúar: Enginn andmæli. Allir sammála um að upphaflega skipulagið sé best, þ.e. hringtorg miðju vegar milli Æsustaðaafleggjara og Reykjahlíðarafleggjara.
Fundurinn var haldinn í bókasafninu og var hann fjölmennur. Fram koma að fulltrúar Vegagerðarinnar og kirkjunnar sáu sér ekki fært að mæta í dag. Annar fundur um sama efni verður haldinn á morgun 17. janúar og hafa fulltrúar kirkjunnar boðað komu sína á þann fund en kirkjan á land sem liggur að veginum í Mosfellsdal og er því hagsmunaaðili.
Sigrún P
Áheyrnarfulltrúar fá sæti í fulltrúaráði SSH – Fréttatilkynning

Áheyrnarfulltrúar fá sæti í fulltrúaráði SSH – Fréttatilkynning

umdaemi-sshAðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) samþykkti á föstudag, 2. desember, tillögu Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um að breyta 6. gr. samþykkta samtakanna á þann veg að öllum framboðum sem náð hafa kjöri í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu verði framvegis heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa með tillögurrétt og málfrelsi á fundum fulltrúaráðs samtakanna.

Framboð sem ekki hafa hlotið nægilegt magn atkvæða til að tilnefna aðalfulltrúa í ráðið hafa hingað til staðið utan við þennan mikilvæga samstarfsvettvangi sveitarfélaganna. Undanskilin frá þeirri reglu hafa þó verið þau framboð sem eiga aðild að meirihlutasamstarfi.

Fyrirmynd að tillögu um áheyrnarfulltrúa sótti Íbúahreyfingin í 50. gr. nýrra sveitarstjórnarlaga nr. 138 frá árinu 2011 en þar er kveðið á um að framboðum sem náð hafa kjöri skuli vera heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa í bæjar- og borgarráð og ef sveitarstjórn leyfir aðrar fastanefndir. Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu heimila áheyrnarfulltrúa í bæjar- og borgarráði og öll heimila þau áheyrnarfulltrúa í fastanefndum nema Garðabær. Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ber ekki að starfa samkvæmt lögunum en með því að samþykkja tillögu Íbúahreyfingarinnar eru þau þó að lýsa yfir vilja til að starfa í þeirra anda.

Reykjavíkurborg átti frumkvæði að því að taka upp ákvæði um áheyrnarfulltrúa í upphafi aldarinnar. Fleiri sveitarfélög fylgdu á eftir s.s. Mosfellsbær. Fyrsta tilraun til að koma ákvæðinu í lög var gerð af þingmönnum Vinstri grænna á 133. löggjafarþingi 2006 til 2007. Hún heppnaðist svo 2011.

Rökin sem þingmennirnir færðu fyrir frumvarpinu voru að því væri ætlað að efla lýðræði og gæta þess að framboðum væri ekki mismunað á grundvelli þess hvort þau væru í meirihlutasamstarfi eða ekki. Hæglega gæti komið upp sú staða að lítið framboð ætti fulltrúa í öllum nefndum en stærra framboð ætti þar engan fulltrúa. Í þessu fælist mismunun gagnvart kjósendum því það ætti ekki að skipta máli hvort listinn sem þeir kjósa er í meirihlutasamstarfi eða ekki. (Sjá http://www.althingi.is/altext/133/s/0288.html).

Það sem vakir fyrir Íbúahreyfingunni er að tryggja kjörnum fulltrúum á höfuðborgarsvæðinu jafnan aðgang að því málefnastarfi sem fram fer á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu; veita þeim jöfn tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og nýta málfrelsið og tillöguréttinn sem þeim eru tryggð í sveitarstjórnarlögum, sbr. 26. og 27 gr.

En það er fleira sem skiptir máli. Jafn réttur til upplýsinga er ekki síður mikilvægur. Íbúahreyfingin telur málefnastarf vera uppsprettu lærdóms sem sérhver stjórnmálahreyfing sem á fulltrúa í sveitarstjórn ætti að hafa beinan aðgang að.

Í upphafi var hugmyndin að tillaga um áheyrnarfulltrúa næði til svæðisskipulagsins. Niðurstaða aðalfundar nú var að samþykkja ákvæði um áheyrnarfulltrúa í fulltrúaráði.  Svæðisskipulagið bíður því betri tíma.

Sigrún H Pálsdóttir
bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar
S. 866 9376
Netfang: sigrunhpalsdottir@gmail.com og ibuahreyfingin@ibuahreyfing.is

P.s. mynd. Tölur um íbúafjölda eru úreltar en hér má sjá umdæmi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Íbúafjöldi nú er um 217 þúsund  af 338 þúsundum á landsvísu, þ.e. um 2/3 hlutar landsmanna.

Heiti mála ekki lýsandi fyrir efni funda í Mosfellsbæ

Heiti mála ekki lýsandi fyrir efni funda í Mosfellsbæ

skjaskot-baejarstjorn-21-des-2016Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar gerði heiti máls í fundarboði að umræðuefni á fundi bæjarstjórnar í dag, 21. desember en nafn erindis skiptir miklu þegar  kemur að því að rekja mál og kynna sér í fundargerðum Mosfellsbæjar. Ef ekki er valið rétt heiti er nær ógerningur að leita þau uppi.

Í fundargerð dagsins í dag var mál sem bar heitið: Krikahverfi, deiliskipulagsbreytingar 2012. Það sem stóð hins vegar til að ræða voru athugasemdir sem íbúar í Krikahverfi gerðu við tillögur að deiliskipulagsbreytingum í hverfinu á því herrans ári 2016 og svör Mosfellsbæjar við þeim. Eins og sjá má er titill málsins þannig að engum dytti í hug að leita að því undir heiti máls sem felur í sér ártalið 2012.

Það var formaður skipulagsnefndar, Bryndís Haraldsdóttir, sem tók að sér að svara. Málið væri auðleyst. Fólk ætti bara að slá inn leitarorðið Krikahverfi. En hvað gerist þá?  Undirrituð gerði tilraun á ytri vef Mosfellsbæjar og valdi 2 nefndir, þ.e. bæjarstjórn og bæjarráð. Undir bæjarstjórn fannst ekkert  og undir bæjarráð nokkur gömul mál og ekkert frá árinu 2016.

Nú stærir Mosfellsbær sig af því að hafa mótað lýðræðisstefnu. En brjóta þessar tálmanir á leit að upplýsingum ekki í bága við hana? Sé lýðræðisstefnan skoðuð kemur í ljós ar þar er gerð krafa um gegnsæi í stjórnsýslu sem felst m.a. í góðu aðgengi íbúa að upplýsingum um þau mál sem eru til umræðu í nefndum og ráðum.  Í stefnunni er meira að segja kveðið á um að fundargerðir skuli vera lýsandi fyrir efni funda en því er öðru nær í Mosfellsbæ og svo hefur lengi verið.

Auðvitað er til fyrirmyndar að móta lýðræðisstefnu en hún þarf að vera virk því annars er hún einskis nýt.  Fulltrúar Íbúahreyfingarinnar hafa margsinnis bent á  að endurskoða þurfi hvernig mál er fram sett í fundargerðum bæjarins en í stað þess bara að ganga í málið velur D- listi að safna liði í vörn og verja vond vinnubrögð með kjafti og klóm, eins og gerðist á fundinum í dag.

Íbúar mega sem sagt áfram una því að geta ekki með einföldum hætti kynnt sér þau mál sem eru á döfinni á vettvangi bæjarmála í Mosfellsbæ.  Lýðræðisstefnan verður því áfram lítið annað en hjómið eitt.

Sigrún H Pálsdóttir

Fjárhagsáætlun 2017 – Ræða bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar

Fjárhagsáætlun 2017 – Ræða bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar

052. umræða um fjárhagsáætlun 7. desember 2017

Eins og bæjarstjóri hefur rakið er margt jákvætt í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2017.  Ýmis þörf verkefni hafa einnig fengið brautargengi milli umræðna. Þar á meðal eru nokkrar tillögur Íbúahreyfingarinnar og þökkum við meirihlutanum fyrir það.

Sýnileiki verkefna í fjárhagsáætlun 

Íbúahreyfingin gerði fjárframlög til náttúruverndar að sérstöku umræðuefni við fyrstu umræðu um fjárhagsáætlun 9. nóvember. Tildrög þess voru að nánast ómögulegt er að greina hve miklu fé Mosfellsbær ver í verkefni sem heyra undir þann málaflokk. Bókhaldslykilinn náttúruvernd eða ígildi hans er hvergi að finna í fjárhagsáætlun og ekki er heldur hægt að greina slík verkefni undir öðrum skyldum bókhaldslyklum. Við hljótum að geta verið sammála um að gegnsæi sé besta leiðin til að mæla afköst í hverjum málaflokki fyrir sig og gildir það um náttúruvernd eins og aðra bókhaldsliði.

Til að auka gegnsæi í náttúruverndarmálum telur Íbúahreyfingin mikilvægt að framvegis verði gerð grein fyrir ráðstöfun fjár í þágu náttúruverndar í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og verður tillaga þess efnis lögð fram á næsta fjárhagsári.

Nefndum sveitarfélagsins er ætlað að vinna umsagnir um fjárhagsáætlun. Samkvæmt samþykkt umhverfisnefndar á nefndin að “hafa umsjón og eftirlit með náttúruvernd, skógrækt og landgræðslu skv. náttúruverndarlögum og lögum um landgræðslu”. Ennfremur “að fara yfir tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun hvers árs hvað varðar þá liði sem falla undir verksvið nefndarinnar og gæta þess í ákvörðunum sínum að halda áætlanir þegar að framkvæmdum kemur.” Ég spyr: Hvernig á umhverfisnefnd að sinna því hlutverki þegar upplýsingar um náttúruverndarverkefni umhverfissviðs vantar í fjárhagsáætlun? Fjallað var um fjárhagsáætlun á fundi umhverfisnefndar 17. nóvember. Ég mæli eindregið með að bæjarfulltrúar skoði fylgigögnin sem þar voru til kynningar. Ef meta ætti hver staða náttúruverndar er í Mosfellsbæ á grundvelli þeirra mætti ætla að málaflokkurinn væri munaðarlaus.

Í þessu samhengi er vert að benda á að athugasemdir Íbúahreyfingarinnar eru tæknilegs eðlis og lúta að gegnsæi og framsetningu verkefna í fjárhagsáætlun sem hvorutveggja skiptir verulegu máli þegar kemur að því að útdeila fé.

Það að ekki skuli vera hægt að lesa það út úr fjárhagsáætlun hvaða verkefni verið er að vinna í þágu náttúruverndar þýðir þó ekki að Mosfellsbær sitji alfarið auðum höndum í umhverfismálum.

Verkefni í þágu náttúruverndar

Í fylgiskjali sem nefnist ‘jarðvegsskipti og gatnagerð í fjárhagsáætlun 2017’ og bæjarstjóri kynnti í bæjarráði 13. október sl. er gert ráð fyrir 8 milljónum kr. í viðhald og endurbætur á göngustíg meðfram Varmá en áin og bakkar hennar er á náttúruminjaskrá. Framkvæmdir á svæðinu þurfa að vera í samræmi við náttúruverndarlög og eru þær að hluta unnar í þeim tilgangi að vernda ána og bakkana, auk  þess að viðhalda og endurbæta göngustíginn. Þetta verkefni heyrir samt undir gatnagerð í fjárhagsáætlun.

Íbúahreyfingin hefur lagt til að unnin verði leiðbeinandi handbók um framkvæmdir á verndarsvæðum. Fordæmalaus uppbygging er framundan í Mosfellsbæ og  mikilvægt að náttúra Mosfellinga haldi verndar- og verðgildi sínu. Þess vegna þessi tillaga. Umhverfissvið hefur tekið vel í hafa og vonandi á hún eftir að hafa bætandi áhrif. Verkefnið lætur lítið yfir sér en leggur samt grunn að því að framkvæmdaaðilar átti sig á hvaða verðmæti þeir eru með í höndunum.

Fleiri verkefni s.s. aðgerðir til að draga úr ört vaxandi útbreiðslu lúpínu og skógarkerfils og kortlagning gróðurþekju- og jarðvegsrofs á vatnsverndarsvæðum og á vatnasviði fallvatna í Mosfellsbæ eru meðal þess sem Íbúahreyfingin hefur lagt til að ráðist verði í á næsta fjárhagsári.

Einnig meiri kynningu og bætt aðgengi að friðlýstum svæðum og gerð fræðsluefnis til að vekja athygli á náttúruvernd. Umhverfissvið gaf út mjög vandaðan bækling í þágu vatnsverndar á árinu og mikilvægt að halda áfram á sömu braut og dreifa til íbúa.  Í ljósi þess að Mosfellsbær hefur hug á því að byggja upp ferðaþjónustu og selja lóðir undir hótel er heldur ekki seinna vænna að huga að frekari stígagerð s.s. í kringum Úlfarsfell.

Verkefni á sviði félagsþjónustu

Á sviði félagsþjónustu lagði Íbúahreyfingin til að svigrúm fjölskyldusviðs til veita styrki til hjálparsamtaka eins og Kvennaathvarfsins og Stígamóta yrði aukið annað árið í röð og er sú tillaga nú hluti af fjárhagsáætlun. Mosfellsbær er í samstarfi við Lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu um aðgerðir gegn heimilisofbeldi. Verkefnið nefnist Saman gegn ofbeldi og eru sveitarfélögin háð þjónustu samtakanna í því verkefni. Háskóli Íslands hefur gert úttekt á því í nokkrum sveitarfélögum og hefur það reynst vel. Þess vegna aukið framlag.

Íbúahreyfingin óskaði líka eftir að breyting á reglum um fjárhagsaðstoð yrði gerð afturkræf en hún fól í sér að fjárhagsaðstoð til ‘einstaklinga sem búa með öðrum en foreldrum’ var lækkuð úr 75% í 50%. Mótrök fjölskyldusviðs eru að tilgangurinn með lækkuninni sé að gera öllum jafn hátt undir höfði.  Það eru góð og gild rök en þegar til þess er litið að fjárhagsaðstoðin er langt undir neysluviðmiði Velferðarráðuneytisins finnst Íbúahreyfingunni ekki réttmætt að lækka framlagið til þessa hóps. Betur færi á því að hækka fjárhagsaðstoð til jafns við Reykjavíkurborg, þ.e. að 100% aðstoð í Mosfellsbæ fari úr 162 þúsund kr. á mánuði í 181 þúsund kr. en það mál mun bíða umræðu næsta fjárhagsári.

Verkefni á sviði fræðslumála

Á sviði fræðslumála lagði Íbúahreyfingin til að tekjuviðmið niðurgreiðslu á leikskólagjöldum yrði hækkað.  Fræðslusvið lagði síðan til mjög góða útfærslu á þeirri tillögu sem leiðir til umtalsverðrar lækkunar á leikskólagjöldum fyrir tekjuminni foreldra og er Íbúahreyfing mjög sátt við það. Tillaga fræðslusviðs gerir ráð fyrir að leikskólagjöld lækki að meðaltali um 15,5%. Lækkunin ætti því að skipta máli fyrir tekjuminni greiðendur en hún er orðin hluti af fjárhagsáætlun.

Aðgæslu þörf

Það eru bjartir tímar framundan í Mosfellsbæ og mikil uppbygging í kortunum. Sjaldan hefur samt verið jafn rík þörf á því að við séum meðvituð um hvert stefnir og að við sjáum til þess að mál þróist á þann veg sem Mosfellingar vilja. Bæjarbúar þurfa að vera með í ráðum og bæjarstjórn sömuleiðis að gæta hagsmuna þeirra í nútíð og framtíð.

Íbúahreyfingin gerði náttúruvernd að sérstöku umræðuefni í umræðum um fjárhagsáætlun þessa árs. Það á sínar ástæður. Við þurfum einfaldlega að gera allt sem í okkar valdi stendur til að vernda náttúru sveitarfélagsins fyrir ágangi á tímum uppbyggingar.

Að lokum þessi viðbótartillaga við 2. umræðu fjárhagsáætlunar:

Tillaga M-lista Íbúahreyfingarinnar um meiri sýnileika náttúruverndarverkefna í fjárhagsáætlun

Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar gerir að tillögu sinni að fjármálastjóra og umhverfissviði verði falið að endurskoða í sameiningu framsetningu á náttúruverndarverkefnum í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og þá sér í lagi bókhaldslyklana sem notaðir eru til að skilgreina útgjaldaliðina. Tilgangurinn er að gera áætlunina gegnsærri og tryggja að þessi mikilvægi þáttur í starfsemi umhverfissviðs og umhverfisnefndar týnist ekki.

Sigrún H Pálsdóttir

Pin It on Pinterest