Styrkjum beint lýðræði í Mosfellsbæ

Styrkjum beint lýðræði í Mosfellsbæ

Lýðræði byggir á þátttöku almennings í ákvörðunum er hann varðar. Í lýðræðissamfélagi á valdið sér uppsprettu hjá fólkinu. Í menntastefnu fyrir öll skólastig frá 2011 er lögð áhersla á að borgarar taki lýðræðislega afstöðu til álitaefna, frá siðferðislegum áherslum til ákvarðana um mótun samfélagsins og ráði þannig í sameiningu öllum meiriháttar málum sínum. Í beinu lýðræði eru haldin regluleg íbúaþing um helstu málefni bæjarfélagsins, þar sem íbúar upplifa að þeir geti haft raunverulega aðkomu að ákvarðanatöku og að hlustað sé á það sem þeir hafa fram að færa. Lykilatriði er að íbúar finni að það sem þeir leggja til skipti máli. Að  loknum fundum eru málefnin tekin saman og íbúum gert fært að fylgjast með framvindu mála.

Lýðræðið á undir högg að sækja

Í Mosfellsbæ hefur sú stjórnmálamenning skapast að niðurlægja pólitíska keppinauta. Bæjarstjóri hefur gengið svo langt að setja hömlur á upplýsingagjöf til löglega kjörinna bæjarfulltrúa með því að mæla svo fyrir að allar upplýsingar um ákveðna þætti stjórnsýslunnar sé einungis hægt að sækja í gegnum hann sjálfan. Slík vinnubrögð á ekki að líða. Aðgengi að upplýsingum er ein af grundvallarforsendum lýðræðislegs samfélags.

Í-listinn leggur áherslu á að stjórnmálamenn hlusti á íbúana og ræði allar hliðar mála, hvaðan sem hugmyndirnar koma. Að ákvarðanir séu teknar í samráði og með málamiðlunum þar sem á þarf að halda. Við viljum setja hámarkstíma á setu bæjarfulltrúa í embætti, sem mætti vera tvö til þrjú kjörtímabil. Þannig er mögulegt að koma í veg fyrir að óæskilegar venjur og hagsmunatengsl nái að festa sig í sessi og að endurnýjun verði í öllum flokkum. Við viljum að ópólitískur bæjarstjóri verði ráðinn til að stuðla að meiri fa gmennsku og gæta að velferð allra Mosfellinga.

Kjósum gegnsæi og fagmennsku

Í-listinn hvetur til þess að skipulag og fjárhagsáætlanir séu gerðar á ábyrgan og gegnsæjan hátt. Íbúahreyfingin hefur hvatt til opins bókhalds á yfirstandandi kjörtímabili líkt og Píratar hafa unnið að hjá Reykjavíkurborg. Í-listinn fagnar því að bókhald Mosfellbæjar verði loks opið öllum. Aðhald er mikilvægt svo traust og ábyrg fjármálastjórnun eigi sér stað.

Íbúahreyfingin hefur unnið að því gera störf bæjarstjórnar gegnsæ svo sú vinna sé sýnileg borgurum. Að upptökur séu til af fundum og að auðvelt sé að nálgast þær.  Nefndarfundir Mosfellsbæjar eru í dag ekki opnir og því verður að breyta. Þegar trúnaður þarf að ríkja um viðkvæm málefni samkvæmt persónuverndarlögum má gera undantekningar, en aðrar upplýsingar eiga að vera aðgengilegar. Fundargerðir allra funda bæjarfélagsins eru mjög stuttar og í þær vantar ítarefni eins og hvernig atkvæði falla. Upptökur af fundum bæjarstjórnar eiga að vera merktar dagskrárliðum og  þannig gerðar aðgengilegar á vefsíðu. Í-listinn mun berjast fyrir því að bæta þessa annmarka á vinnubrögðum bæjarstjórnar.

Þann 26. maí næstkomandi þurfa frambjóðendur að endurnýja umboð sitt. Þegar sömu öfl eru við völd of lengi er hætt við stöðnun. Við á Í-lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata hvetjum alla bæjarbúa til að horfa langt fram á veginn og hugsa um tækifæri komandi kynslóða.Veljum traust, heiðarleika og gagnsæi

Kristín Vala Ragnarsdóttir er í 2. sæti á Í-lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata í Mosfellsbæ. Grein birtist fyrst í Mosfellingi, 17. maí 2018.

Íbúafundur um íþróttamál í Mosfellsbæ

Íbúafundur um íþróttamál í Mosfellsbæ

Íbúahreyfingin og Píratar lýsa yfir óánægju með að hafa ekki fengið fyrirliggjandi upplýsingar um ástand mannvirkja í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.

Á íbúafundi Aftureldingar í Hlégarði í gær var dregin upp dökk mynd af ástandi mannvirkja félagsins og aðstöðu og aðbúnaði félaga. Yfirstjórn Aftureldingar var berorð og ljóst er að mælirinn er fullur!

Ástandið er verra en bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar var upplýstur um. Fundurinn í gær staðfestir þá skoðun okkar að stjórnsýsla Mosfellsbæjar sé ómarkviss og að ráðast þurfi í meiriháttar breytingar á stjórnarháttum í Mosfellsbæ. Það er ólíðandi að upplýsingar um alvarleika þessa máls skuli ekki hafa skilað sér inn á borð kjörinna fulltrúa, þrátt fyrir að framkvæmdastjóri Aftureldingar og yfirstjórn hafi ítrekað fundað með bæjarstjóra og embættismönnum.

Öll mál sem varða hagsmuni Mosfellinga og félaga sem starfa hér í þeirra þágu á að ræða opinskátt í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Öðruvísi geta kjörnir fulltrúar ekki starfað markvisst, brugðist við og gripið til aðgerða. Það hefur sjaldan verið augljósara en á fundinum í gær hve upplýsingagjöf innan stjórnkerfis Mosfellsbæjar er ábótavant. Í þessu tilviki hefur fjárhagsleg afkoma Aftureldingar skaðast og íþróttaiðkendur beðið heilsutjón á meðan beðið er eftir aðgerðum.

Íbúahreyfingin og Píratar leggja áherslu á að ráðinn verði ópólitískur bæjarstjóri á næsta kjörtímabili sem tengir starfsmenn bæjarins og kjörna fulltrúa á faglegan hátt svo stjórnkerfi Mosfellsbæjar þjóni íbúum betur. Markmiðið er að tryggja að hagsmunir og velferð Mosfellinga séu höfð að leiðarljósi í allri stjórnsýslu. Upplýsingum sé miðlað og reglum framfylgt svo kjörnir fulltrúar nái að sinna hlutverki sínu gagnvart íbúum sveitarfélagins.

Ungmennafélagið Afturelding er stærsti félagslegi vettvangur barna- og foreldrastarfs í Mosfellsbæ og skylda okkar að standa vörð um það.

Kosningaáróður á Kjarnanum

Kosningaáróður á Kjarnanum

Erindi Íbúahreyfingarinnar um kosningaáróður Sjálfstæðisflokksins á bæjarskrifstofum var tekið fyrir í bæjarráði föstudaginn 11. maí sem tillaga 7. 201802082 –  Sveitarstjórnarkosningar 2018.

Fyrir hönd Íbúahreyfingarinnar óskaði Sigrún Pálsdóttir eftir umfjöllun um auglýsingar framboða við bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar. Tillaga Íbúahreyfingarinnar (sjá hér að neðan) snérist um að fulltrúar D-lista fjarlægðu kosningaáróður sinn úr gluggum Kjarnans og af vegg við innganginn að bæjarskrifstofunni:

,,Kjarni er opinber bygging sem hýsir bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, fundarsali bæjarstjórnar og bæjarráðs, auk annarra fagnefnda, Bókasafn Mosfellsbæjar, Listasal Mosfellsbæjar og Heilsugæslu Mosfellsbæjar. Í húsinu fundar einnig yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar. Á Íslandi, eins og í öðrum lýðræðisríkjum, er grundvallarregla að hengja ekki upp kosningaráróður á og í opinberum byggingum. Íbúar í Mosfellsbæ eiga rétt á því að þeim sé hlíft við slíkum áróðri þegar þeir koma í erindagjörðum á bæjarskrifstofu sína. Íbúahreyfingin hvatti Sjálfstæðisflokkinn til að virða þá meginreglu að merkja framboði sínu ekki húsið sem í hugum Mosfellinga er ráðhús bæjarins.’’

Tillaga Íbúahreyfingarinnar var felld með 2 atkvæðum D-lista. S-listi sat hjá en bókaði samt kvörtun. Fulltrúi V-lista tók undir með D-lista enda eru þau með kosningaskrifstofu í sama húsi.

Markmið Íbúahreyfingarinnar með tillögunni var að vekja athygli á kosningaáróðri framboðsauglýsinga á Kjarnanum sem hýsir bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, Bókasafn Mosfellsbæjar, Listasal Mosfellsbæjar og Heilsugæslu Mosfellsbæjar auk þess fundar yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar einnig í húsinu. D-listinn er í meirihluta og stýrir Mosfellsbæ úr bæjarskrifstofum Kjarnans.

Við í Íbúahreyfingunni og Pírötum teljum að jafnræði eigi að ríka og það að tillagan hafi verið felld veki upp alvarlegar spurningar um siðferði í stjórnmálum. D-listinn réttlætir merkingar sínar utan á húsi Kjarnans með að þetta hefur verið gert áður sem við teljum ekki vera grunn fyrir að gera það aftur. Annað áhugavert við þetta mál er að S-listinn sat hjá í atkvæðagreiðslunni en bókaði samt kvörtun vegna framboðsmerkinga á húsi Kjarnans og taldi merkingar óviðunandi í kvörtun sinni. Það vekur undrun að S-listinn getur ekki staðið með sér og kosið eftir eigin sannfæringu.

Öflugt aðhald hefur einkennt starf Íbúahreyfingarinnar í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og ljóst er að þörf er á því áfram. Íbúahreyfingin og Pírtar fylgja eftir áherslum sínum af festu og heiðarleika og því verður engin breyting á!

Sameiginlegt framboð Íbúahreyfingarinnar og Pírata

Sameiginlegt framboð Íbúahreyfingarinnar og Pírata

Íbúahreyfingin og Píratar bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum í Mosfellsbæ, undir listabókstafnum Í.

Stjórnmálahreyfingarnar tvær eiga margt sameiginlegt en báðar leggja áherslu á opna, gagnsæja og heilbrigða stjórnmálamenningu til að styrkja lýðræðið og efla borgara til að hafa áhrif á samfélagið. Það er mikilvægt að hafa kjark til að fylgja áherslum sínum eftir og Íbúahreyfingin hefur sýnt það í verki og því fagna Píratar.

Í Mosfellsbæ eru fjölmargar áskoranir framundan á sviði félagsþjónustu, menningarstarfsemi, skipulagsvinnu, útivistar- og umhverfismála. Eitt brýnasta verkefnið er þó án efa að aflétta neyðarástandi í húsnæðismálum ungs fólks og þeirra efnaminni í Mosfellsbæ.

Á sameiginlegum lista er fjölbreyttur hópur Mosfellinga með skýra sýn á verkefnin framundan. Með umboði kjósenda í kosningunum 26. maí munum við halda áfram öflugu starfi Íbúahreyfingarinnar, nú með liðsstyrk Pírata.

Framboðslisti Íbúahreyfingarinnar og Pírata

  1. Sigrún H. Pálsdóttir, bæjarfulltrúi og leiðsögumaður
  2. Kristín Vala Ragnarsdóttir, jarðfræðingur og háskólakennari
  3. Friðfinnur Finnbjörnsson, lagerstarfsmaður
  4. Nanna Vilhelmsdóttir, háskólanemi og áhugaleikkona
  5. Benedikt Erlingsson, leikstjóri
  6. Úrsúla Jünemann, kennari
  7. Gunnlaugur Johnson, arkitekt
  8. Marta Sveinbjörnsdóttir, mannfræðinemi
  9. Jón Jóhannsson, garðyrkjubóndi
  10. Sigrún Guðmundsdóttir, umhverfisfræðingur
  11. Birta Jóhannesdóttir, leiðsögumaður
  12. Emil Pétursson, húsasmíðameistari og leikmyndasmiður
  13. Hildur Margrétardóttir, myndlistarkona og Waldorfkennari
  14. Sigurður G. Tómasson, útvarpsmaður
  15. Páll Kristjánsson, hnífasmiður
  16. Eiríkur Heiðar Nilsson, hugbúnaðarfræðingur
  17. Sæunn Þorsteinsdóttir, myndlistarkona
  18. Kristín I. Pálsdóttir, verkefnisstjóri
D- og V-listi fella tillögu um fjölgun bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ

D- og V-listi fella tillögu um fjölgun bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ

Fulltrúar D- og V-lista felldu þá tillögu Íbúahreyfingarinnar að fjölga bæjarfulltrúum úr 9 í 11 á fundi bæjarstjórnar nr. 713  miðvikudaginn 21. mars .

Það var forvitnilegt að hlusta á rökin sem fulltrúar D- og V-lista færðu fyrir því að fella tillöguna. Bryndís Haraldsdóttir bæjarfulltrúi og þingmaður sagðist orðrétt ekki kaupa þau rök að það væri lýðræðislegra að fjölga bæjarfulltrúum. Sú skoðun er áhugaverð því hún er andstæð þeim rökum sem löggjafinn færir fyrir því að fjöldi fulltrúa í sveitarstjórnum skuli taka mið af íbúafjölda. Eftir því sem íbúum fjölgar skal skv. svetiarstjórnarlögum fjölga sveitarstjórnarfulltrúum og er það beinlínis eitt af tækjum löggjafans til að efla lýðræðið, sbr. texta í tillögunni hér að neðan.

Þess má geta að nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Flokks fólksins hafa lagt fram frumvarp um að sveitarfélögum verði framvegis í sjálfsvald sett að ákveða fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum. Frumvarpið má skilja sem ógn við lýðræðið því sá flokkur sem hefur mestan hag af því að halda niðri tölu sveitarstjórnarfulltrúa hefur hingað til verið Sjálfstæðisflokkurinn.

Þingmaðurinn og bæjarfulltrúinn Bryndís talaði líka um þann kostnað sem af því hlytist að fjölga bæjarfulltrúum sem fyrirstöðu.

Kolbrún Þorsteinsdóttir sagði hugtakið popúlismi sitja fast í sér undir þessari umræðu.  (Reyndar var það svo líka þegar undirrituð bar fram tillögu að efla jafnréttisfræðslu í Mosfellsbæ.) Bæjarfulltrúanum var líka tíðrætt um að vanda til verka. Málið væri seint til komið. Þá afsökun notuðu einnig Haraldur Sverrisson og Bjarki Bjarnason fulltrúi Vinstri grænna þegar þeir höfnuðu tillögu um fjölgun bæjarfulltrúa.

Undirrituð bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar benti á að málið væri vissulega seint til komið en ráðuneytið væri hins vegar tilbúið til að afgreiða það á innan við viku. Frestur til að skila inn framboðslista væri til 5. maí. Hægt væri því að koma málinu í gegn um 2 umræður í bæjarstjórn fyrir þann tíma. Hvað viðvíkur því að vanda til verka er staðreyndin sú að undirbúningavinna sveitarfélagsins og framboðanna er minniháttar. Vilji er í raun það sem þarf.

Hvað kostnaðarrökin varðar er það auðvitað svo að ef nota ætti kostnað til að ákveða fjölda bæjarfulltrúa er auðvitað ódýrast að hafa hér einræðisherra við völd.  Ef frumvarp flokkanna þriggja um valkvæðan fjölda sveitarstjórnarfulltrúa nær fram að ganga er sá veruleiki kannski nær en nokkurt okkar grunar.

Tillaga M-lista Íbúahreyfingarinnar

“Bæjarstjórn leggur til að bæjarfulltrúum verði fjölgað í 11 frá og með sveitarstjórnarkosningum 2018. Heimild í lögum um fjölgun sveitarstjórnarfulltrúa hefur ekki verið nýtt til fulls en skv. 11. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er sveitarfélögum með 2.000 til 9.999 íbúa heimilt að hafa allt að 11 sveitarstjórnarfulltrúa. Sveitarfélögum með fleiri en 10.000 íbúa er heimilt að hafa 11-15 sveitarstjórnarfulltrúa. Tillaga Íbúahreyfingarinnar “er í samræmi við þá lýðræðislegu hugsun sem býr að baki sveitarstjórnarstiginu og reglum um kosningar til sveitarstjórna að sveitarstjórnarfulltrúar séu fulltrúar íbúa sveitarfélagsins og geti þar með á virkan hátt endurspeglað vilja íbúanna.”

Tillagan felur í sér breytingu á samþykktum Mosfellsbæjar.”

Niðurstöður: Tillagan felld með atkvæðum fulltrúa D- og V-lista. Tillöguna samþykktu fulltrúar M- og S-listi.

Bókun M-lista Íbúahreyfingarinnar

“Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar harmar þá niðurstöðu fulltrúa D- og V-lista að hafna fjölgun bæjarfulltrúa úr 9 í 11. Einnig þá staðhæfingu fulltrúa D-lista að fjölgun bæjarfulltrúa efli ekki lýðræðið. Það er lögbundið að fjölga bæjarfulltrúum í 11 til 15 í sveitarfélögum sem fara yfir 10 þúsund íbúa þannig að við stöndum frammi fyrir því í þar næstu kosningum að þeim verður fjölgað hvort sem er. Rökin fyrir því eru efling lýðræðis.

Vilji er því allt sem þarf. “

Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi

Pin It on Pinterest