Sundabraut á landfyllingum yfir Leiruvog – Stöldrum við
Lítið hefur farið fyrir umræðu um þau náttúruverðmæti og útivistarsvæði sem í húfi eru í tengslum við lagningu Sundabrautar. Samkvæmt þeim tillögum sem haldið hefur verið á lofti á í sparnaðarskyni að leggja hraðbrautina á landfyllingum með lítilli...
Mosfellsbær svarar ekki fyrirspurn um heimilisofbeldi
Í ljósi frétta um alvarlegt og aukið ofbeldi á heimilum vegna Covid 19 er vakin athygli á því að engar upplýsingar er að finna á heimasíðu Mosfellsbæjar um þjónustu sveitarfélagsins vegna heimilisofbeldis og þátttöku þess í verkefni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu...
Tenging vélaverkstæðis í Hafnarfirði við lóðakaup hér
Hvernig tengist Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar (VHE) í Hafnarfirði fasteignaverkefnum í Mosfellsbæ? Það fyrsta sem kemur upp í hugann er að Gunnar Ármannsson er lögfræðingur VHE. Hann fór fyrir Primacare-verkefninu í Mosfellsbæ 2009, auk þess að fá leyfi bæjarráðs...
Raunverulegir eigendur enn á huldu í Mosfellsbæ
Nú eru lög um skráningu á raunverulegum eigendum komin til framkvæmda sem er vel. Eitthvað virðist þó undarlega að lagasetningunni staðið. Á meðan félögum, eins og foreldrafélögum sem eiga lítið undir sér, er gert skylt að gera grein fyrir raunverulegum eigendum eru...
Frístundastyrkur mismunandi eftir sveitarfélögum
ASÍ heldur sem fyrr áfram að bera saman þau lífsgæði sem sveitarfélögin skapa íbúum sínum. Nú er verkefnið frístundaávísunin en hún leggur grunn að því ómetanlega starfi sem fram fer í íþróttafélögum og listaskólum vítt og breitt um landið. Eða hélt kannski einhver...
Rjúfum kyrrstöðu í Mosfellsbæ!
Við fáum tækifæri til þess að kjósa og nýta lýðræðislegan rétt okkar á laugardag 26. maí. Í Mosfellsbæ eru átta listar í framboði og því mikilvægt að kjósendur kynni sér vel fyrir hvað þeir standa og hverju þeir eru líklegir til að áorka. Við í...
Heilsueflandi samfélag fyrir alla
Íbúar í Mosfellsbæ eru stoltir af því að tilheyra heilsueflandi samfélagi þar sem lögð er á- hersla á að heilsa og líðan allra bæjarbúa sé höfð í fyrirrúmi í allri stefnumótun. Heild- ræn nálgun er lykillinn að árangri en umhverfið getur haft jákvæð...
Vaxtarverkir í skólamálum
Fátt er okkur mikilvægara en að börnin okkar njóti góðrar menntunar og að þeim líði vel í skólanum en skólar í Mosfellsbæ njóta almennt virðingar. Leikskólarnir eru orðnir sjö, grunnskólarnir eru þrír og sá fjórði í byggingu í Helgafellslandi. Ör og...
Kosningablað Íbúahreyfingarinnar og Pírata 2018
Kosningablað Í-lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata kom út 22. maí sl. Hægt er að hlaða blaðið niður með því að ýta á tengil, Kosningablað Í-lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata 2018.
Íbúafundur Íbúahreyfingarinnar og Pírata
Íbúahreyfingin og Píratar í Mosfellsbæ bjóða alla velkomna á opinn íbúafund í Hlégarði fimmtudaginn 24. maí kl. 20:00-22:00. Við fáum góða gesti til að halda erindi á fundinum og Sigrún H. Pálsdóttir oddviti Í-lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata...
Náttúruvernd er okkar hjartans mál
Náttúruvernd er eitt mikilvægasta málefni mannkynsins nú og í framtíðinni. Okkur ber að hlúa að vistkerfum jarðar og sjá til þess að þau virki áfram okkur í hag. Án heilbrigðra vistkerfa þrífst ekkert líf á jörðinni. Til að vernda náttúrugæði er...
Í-listinn vinnur fyrir íbúa!
Íbúahreyfingin býður nú fram í þriðja sinn í Mosfellsbæ, að þessu sinni með liðsstyrk Pírata undir listabókstafnum Í. Fyrir kosningarnar 2014 gekk Sigrún H. Pálsdóttir til liðs við Íbúahreyfinguna og hefur hún staðið í ströngu á kjörtímabilinu,...
Umhverfið, náttúran og skógrækt
Umhverfisvernd og náttúruvernd eru ekki sama hugtakið. Umhverfið er allt það sem er umhverfis okkur, bæði manngert og náttúrulegt. Náttúran hins vegar hefur sín eigin lögmál, óháð mönnum. Þannig að þegar við tölum um náttúruvernd þá þýðir það að vernda svæði sem eru...
Framtíðin er í Mosfellsbæ
Mosfellsbær er fallegt samfélag með vinalegu fólki. Við konan mín fluttum í bæinn fyrir áramót með börnin okkar, Eric þriggja ára og Leiu fimm ára. Leikskólinn sem þau eru á er einn sá besti sem við höfum kynnst og grunnskólinn sem þau munu sækja virkar mjög...
Geta allir búið í Mosfellsbæ?
Eitt af verkefnunum framundan er að takast á við húsnæðisvanda tekjulægri hópa í Mosfellsbæ. Á undanförnum árum hefur íbúðaverð og leiga hækkað langt umfram launahækkanir og neyðarástand skapast sem bitnar hvað harðast á þeim sem hafa minnstar og lágar meðaltekjur....
Styrkjum beint lýðræði í Mosfellsbæ
Lýðræði byggir á þátttöku almennings í ákvörðunum er hann varðar. Í lýðræðissamfélagi á valdið sér uppsprettu hjá fólkinu. Í menntastefnu fyrir öll skólastig frá 2011 er lögð áhersla á að borgarar taki lýðræðislega afstöðu til álitaefna, frá siðferðislegum áherslum...
Íbúafundur um íþróttamál í Mosfellsbæ
Íbúahreyfingin og Píratar lýsa yfir óánægju með að hafa ekki fengið fyrirliggjandi upplýsingar um ástand mannvirkja í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Á íbúafundi Aftureldingar í Hlégarði í gær var dregin upp dökk mynd af ástandi mannvirkja félagsins og aðstöðu og...
Kosningaáróður á Kjarnanum
Erindi Íbúahreyfingarinnar um kosningaáróður Sjálfstæðisflokksins á bæjarskrifstofum var tekið fyrir í bæjarráði föstudaginn 11. maí sem tillaga 7. 201802082 – Sveitarstjórnarkosningar 2018. Fyrir hönd Íbúahreyfingarinnar óskaði Sigrún Pálsdóttir eftir umfjöllun um...
Sameiginlegt framboð Íbúahreyfingarinnar og Pírata
Íbúahreyfingin og Píratar bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum í Mosfellsbæ, undir listabókstafnum Í. Stjórnmálahreyfingarnar tvær eiga margt sameiginlegt en báðar leggja áherslu á opna, gagnsæja og heilbrigða stjórnmálamenningu til að...
D- og V-listi fella tillögu um fjölgun bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ
Fulltrúar D- og V-lista felldu þá tillögu Íbúahreyfingarinnar að fjölga bæjarfulltrúum úr 9 í 11 á fundi bæjarstjórnar nr. 713 miðvikudaginn 21. mars . Það var forvitnilegt að hlusta á rökin sem fulltrúar D- og V-lista færðu fyrir því að fella tillöguna. Bryndís...
Til hamingju með daginn Mosfellingar!
Í dag fjölgar íbúum í Mosfellsbæ um tíu. Nýju íbúarnir eru flóttamenn og koma þeir frá Kenía þar sem þeir hafa lifað sem flóttamenn frá Úganda við erfiðar aðstæður í þrjú ár. Það voru fulltrúar Rauða krossins og starfsmenn Mosfellsbæjar sem tóku á móti þeim í Keflavík...
Íbúahreyfingin vill fjölga bæjarfulltrúum í Mosfellsbæ
Tillaga um fjölgun bæjarfulltrúa úr 9 í 11 var á dagskrá bæjarráðs á fimmtudag 15. mars. Á síðasta ári fjölgaði íbúum í Mosfellsbæ um ein 8% og nálgast íbúafjöldinn nú ellefu þúsund. Lög gera ráð fyrir að í bæjarfélögum með yfir tíuþúsund íbúa sé fjöldi bæjarfulltrúa...
Vald er vandmeðfarin auðlind
Nýlega fékk undirrituð tölvupóst frá undirmanni bæjarstjóra Mosfellsbæjar með ýmsum ávirðingum sem ýmist voru órökstuddar eða beinlínis rangar. Mátti skilja á póstinum að starfsfólk hefði óljósar hugmyndir um hvort því bæri yfirhöfuð skylda til að aðstoða kjörna...
Laun bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Mosfellsbæ – Fyrirspurn
Það er tímans tákn að upplýsingar um greiðslur úr opinberum sjóðum skuli vera aðgengilegar almenningi. Launakjör stjórnmálamanna og stjórnsýslu eru þar á meðal. Mikið er rætt um nauðsyn þess að efla trú almennings á stjórnmálum og stofnunum þessa lands. Væri ekki...
Framtíð Hlégarðs í Mosfellsbæ – Hugleiðingar
Málefni Hlégarðs eru nú til umræðu í menningarmálanefnd Mosfellsbæjar. Framtíð hússins er óviss en niðurstaða mikilvæg því hún hefur þýðingu fyrir svarið við þeirri spurningu hvort Mosfellsbær er úthverfi frá Reykjavík í félagslegu og menningarlegu tilliti eða...
Bætum aðstöðu til tónlistarnáms í Mosfellsbæ
Tónlistarlíf hefur lengi verið blómlegt í Mosfellsbæ, öflugur tónlistarskólli, lúðrasveit, hljómsveitir og kórar. Við vitum að tónlistarnám er gefandi veganesti út í lífið og tónlist það mikilvægur þáttur í daglega lífi og menningarstarfi að passa þarf upp á að hlúa...
Kallað eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og efnaminni í Mosfellsbæ
Íbúahreyfingin hefur lagt fram tillögu um að Mosfellsbær láti af hendi lóð og/eða setji kvaðir í skipulag til að auka framboð á ódýru leiguhúsnæði fyrir ungt fólk og efnaminni. Til að tryggja viðráðanlegt leiguverð er líklegast til árangurs að Mosfellsbær leiti eftir...
Óviðeigandi hegðun nefndarmanns – Bréf til bæjarráðs Mosfellsbæjar
Bréf Hildar Margrétardóttur til bæjarráðs vegna óviðeigandi hegðunar nefndarmanns á 1325. fundi bæjarráðs: Mér var illa misboðið á síðasta bæjarráðsfundi þar sem ég sat sem varamaður fyrir fulltrúa okkar í Íbúahreyfingunni. Hegðun nefndarmanns meirihlutans var með...
Kominn tími á heilsueflandi siðbót í stjórnmálum í Mosfellsbæ
Samskipti í bæjarstjórn Mosfellsbæjar hafa lengi verið til umræðu meðal Mosfellinga. Tíðindin eru ekki ný. Íbúahreyfingin segir einfaldlega að nú sé komið nóg. Fólk þarf að bæta sig. Stjórnmálastarf á ekki að vera undanþegið þeim reglum sem almennt gilda um...
Bæjarráð aðhefst ekkert og greiðir varabæjarfulltrúa laun þrátt fyrir afsögn
Þríeykið í bæjarstjórn Mosfellsbæjar, fulltrúar D-, S- og V-lista, ákváð í morgun á 1320. fundi bæjarráðs að aðhafast ekkert í máli varabæjarfulltrúans Jóns Jósefs Bjarnasonar og hafnaði tillögu M-lista Íbúahreyfingarinnar um aðgerðir í þeim tilgangi að finna lausn á...
Stemning fyrir bestu leiðinni í Mosfellsbæ
Nú eru ný hverfi óðum að rísa í Mosfellsbæ og íbúum að fjölga samhliða því. Skuggi fellur þó á gleðina því engir strætisvagnar eru á næsta leiti í hverfinu undir Helgafelli, í Leirvogstungu og víðar. Þótt uppbygging hverfanna sé vel á veg komin hafa enn engar áætlanir...
Er við einhvern að sakast vegna fiskadauða í Varmá?
Fiskadauði í Varmá verður á dagskrá fundar bæjarráðs Mosfellsbæjar á morgun 20. júlí. Það er því ekki úr vegi að gefa lesendum smá innsýn í það sem málshefjandi og bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar gerir ráð fyrir að ræða á fundinum 🙂 : Eins og fram kom í máli...
Efnistaka í Seljadal á dagskrá í Mosfellsbæ enn á ný
Seljadalsnáma var einu sinni sem oftar til umræðu á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í vikunni. Að þessu sinni var erindið að fá samþykki fyrir því að láta umhverfismeta námuna og svæðið þar í kring í þeim tilgangi að kanna fýsileika áframhaldandi efnistöku en hún...
Vegir ójöfnuðar eru margvíslegir
Fjöldi leiguíbúða á vegum sveitarfélaga er hvergi minni en í Mosfellsbæ að Garðabæ frátöldum. Varasjóður húsnæðismála og Velferðarráðuneytið hefur gefið út skýrslu um ástandið. Þar kemur fram að Mosfellsbær leigir út 0,31 íbúð á 100 íbúa. Til samanburðar eru íbúðirnar...
Bæjarstjóri svarar gagnrýni með breyttum úthlutunarreglum
Í morgun samþykkti bæjarráð Mosfellsbæjar erindi bæjarstjóra þess efnis að breyta reglum um úthlutun leigulóða. Það vekur athygli að ákvæði sem fjallar um að umsækjandi um lóð skuli sýna fram á að geta staðið undir áætlaðri fjárfestingu hefur verið breytt á þann veg...
Landsnet fundar um styrkingu Brennimelslínu í Mosfellsbæ
Hér á eftir fer gróf lýsing á því sem fram kom á fundi bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ með Landsneti 18. janúar sl. Landsnet hyggst auka flutningsgetu Brennimelslínu 1 og hafa fulltrúar fyrirtækisins nú kynnt hugmyndir sínar fyrir bæjaryfirvöldum. Fundurinn var liður í...
Opinn fundur um Þingvallaveg – gróf samantekt
Umferðarhraði á Þingvallavegi í Mosfellsdal hefur lengi verið til umræðu í Mosfellsbæ. Íbúar í dalnum hafa verið uggandi og heitar umræður verið um hvernig draga megi úr umferðarhraða. Í dag, mánudaginn 16. janúar, hélt Mosfellsbær, opinn fund með íbúum um...
Áheyrnarfulltrúar fá sæti í fulltrúaráði SSH – Fréttatilkynning
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) samþykkti á föstudag, 2. desember, tillögu Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um að breyta 6. gr. samþykkta samtakanna á þann veg að öllum framboðum sem náð hafa kjöri í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu...
Heiti mála ekki lýsandi fyrir efni funda í Mosfellsbæ
Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar gerði heiti máls í fundarboði að umræðuefni á fundi bæjarstjórnar í dag, 21. desember en nafn erindis skiptir miklu þegar kemur að því að rekja mál og kynna sér í fundargerðum Mosfellsbæjar. Ef ekki er valið rétt heiti er nær ógerningur...
Fjárhagsáætlun 2017 – Ræða bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar
2. umræða um fjárhagsáætlun 7. desember 2017 Eins og bæjarstjóri hefur rakið er margt jákvætt í fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2017. Ýmis þörf verkefni hafa einnig fengið brautargengi milli umræðna. Þar á meðal eru nokkrar tillögur Íbúahreyfingarinnar og þökkum við...
SSH samþykkja ákvæði um áheyrnarfulltrúa
Tillaga íbúahreyfingarinnar um að framvegis verði framboðum í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu heimilt að tilnefnda áheyrnarfulltrúa í fulltrúaráð Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) var samþykkt á aðalfundi SSH í gær. Mikið pólitískt starf fer fram í...
Vöndum til verka í Sunnukrika og höfum íbúa með í ráðum
Beiðni verktakafyrirtækis um “Samstarf um þróun og uppbyggingu lóða við Sunnukrika 3-9” var á dagskrá fundar bæjarráðs 8. september sl. Afgreiðslunni var frestað þar sem fleiri hafa sýnt lóðunum áhuga. Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar kynnti samt afstöðu sína til málsins...
Sjúkrahúsmál aftur á dagskrá bæjarráðs
Einkasjúkrahús var aftur til umræðu á fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar í dag. Á fundi bæjarstjórnar 17. ágúst sl. hafði fulltrúi Íbúahreyfingarinnar gagnrýnt ákvörðun fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði um að úthluta huldumönnum lóð undir sjúkrahúsið án þess að afla...
Úthlutun lóðar undir einkasjúkrahús – ræða í bæjarstjórn
- bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í bæjarstjórn 17. ágúst 2016 Í dag kemur bæjarstjórn í fyrsta sinn saman eftir viðburðaríkt sumarfrí en á meðan á því stóð tóku fulltrúar D- og S-lista í bæjarráði þá ákvörðun að úthluta mönnum sem skv. fréttum virðast ekki eiga...
Íbúahreyfingin um einkasjúkrahús – bókun í bæjarstjórn
Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar átelur þau vinnubrögð fulltrúa D- og S-lista í bæjarráði Mosfellsbæjar harðlega að hafa í sumarfríi bæjarstjórnar úthlutað óþekktum aðilum í trássi við eðlilega verkferla samtals hundrað og tuttugu þúsund m2 af landi Mosfellsbæjar til...
Einkasjúkrahús og endurskoðun aðalskipulags á síðasta kjörtímabili
Í yfirlýsingum D-, S- og V-lista um úthlutun bæjarráðs á lóð undir einkasjúkrahús og -hótel í Reykjahverfi í Mosfellsbæ er því haldið fram að um einfalda endurúthlutun á lóðinni hafi verið að ræða. Bæjarráðsmenn hafi staðið frammi fyrir orðnum hlut sem eigi rætur að...
Nýr formaður
Hildur Margrétardóttir var kosin formaður stjórnar Íbúahreyfingarinnar á aðalfundi 26. janúar. Aðrir í stjórn eru Jón Sævar Jónsson gjaldkeri, Hjördís Arnardóttir Bjartmars ritari, Kristín I Pálsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir meðstjórnendur. Í varastjórn eru...
Aðalfundur
Stjórn Íbúahreyfingarinnar mun halda aðalfund í Fiskabúrinu í Bókasafni Mosfellsbæjar þriðjudaginn 26. janúar kl. 16.00-18.00. Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf. Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn í síðasta lagi 18. janúar. Sjá...
Fjárhagsáætlun – 2. umræða
Mig langar að byrja á því að þakka bæjarstjóra yfirferðina og starfsmönnum bæjarins fyrir þá miklu vinnu sem þeir hafa lagt á sig við undirbúning fjárhagsáætlunar. Það er ljóst að fjöldi sveitarfélaga á við fjárhagsvanda að etja. Haraldur Sverrisson ætlar þó að skila...
Ákvæði um áheyrnarfulltrúa
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fór fram í Félagsgarði í Kjós í gær föstudag 20. nóvember. Á fundinum gerði Íbúahreyfingin grein fyrir tillögu um að samtökin innleiddu ákvæði um áheyrnarfulltrúa í samþykktir sínar sem tæki mið af 50. gr....
Vatnsvernd í landi Selholts
Ræða um vatnsvernd í landi Selholts á Mosfellsheiði í bæjarstjórn Mosfellsbæjar 18. nóvember 2015. Þarna er verið breyta aðal- og deiliskipulagi og hluti af því svæði er vatnsverndarsvæði upp á Mosfellsheiði við Leirtjörn. Það er fyrirtækið Stórsaga sem á að fá þar...
Fjárhagsáætlun 2016 til 2019
Nú er 1. umræðu um fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2016-2019 lokið. Íbúahreyfingin hafði þetta fram að færa að því tilefni: Forseti, ágætu bæjarfulltrúar og aðrir fundargestir Mig langar að byrja á því að þakka Aldísi Stefánsdóttur sem er staðgengill bæjarstjóra fyrir...
Yfirlýsing frá Íbúahreyfingunni
Að gefnu tilefni vill Íbúahreyfingin koma því á framfæri að þann 13. maí 2014, þ.e. stuttu áður en kjósendur gengu að kjörborði í sveitarstjórnarkosningum, sagði Jón Jósef Bjarnason, annar maður á lista framboðsins, sig frá öllu samstarfi við Íbúahreyfinguna í pósti...
Ný stjórn Íbúahreyfingarinnar
Á aðalfundi 26. maí kaus Íbúahreyfingin sér nýja stjórn og er hún skipuð eftirtöldum félögum: Formaður: Birta Jóhannesdóttir Gjaldkeri: Jón Sævar Jónsson Meðstjórnandi: Hildur Margrétardóttir Meðstjórnandi: Hjördís Bjartmars Meðstjórnandi: Sigrún Guðmundsdóttir...
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar verður haldinn í glerbúri Bókasafns Mosfellsbæjar í Kjarna þriðjudaginn 26. maí kl. 16.30 til 17.50. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf.
Mér þykir vænt um þennan skóla
Fyrir meira en 30 árum fluttum við hjónin í Mosfellssveit eins og sveitarfélagið hét þá. Á þeim tíma gat maður fest kaup á húsnæði sem var talsvert ódýrara en í Reykjavík. Okkar börn ólust upp hér í bænum og fengu sína grunnskólamenntun í Varmárskóla. Þá var þetta...
Um birtingu fundargagna á vef Mosfellsbæjar
Nýverið tók bæjarráð Mosfellsbæjar aðra umræðu um birtingu gagna með fundargerðum á vef. Eins og áður hefur komið fram er gleðiefni að rafræn birting fundargagna skuli vera komin á framkvæmdastig því henni fylgir mikið hagræði fyrir almenning sem getur framvegis sótt...
Meira lýðræði í stjórnmálastarfi
Þátttakendum á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga gæti fjölgað um 55 ef sú tillaga Íbúahreyfingarinnar nær fram að ganga á þinginu nú í apríl að öll framboð sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn öðlist rétt til að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa til setu á...
Er lýðræði bara tómt vesen?
Lýðræðisást er örugglega ekki eitt af þeim hugtökum sem hægt er að nota til að lýsa þankagangi fulltrúa D-lista í bæjarráði Mosfellsbæjar en á fundi ráðsins í morgun var fjallað um að halda áfram vinnu starfshóps um fjölnota íþróttahús. Til hópsins var stofnað í...
Upplýsa þarf Mosfellinga um skólpmengun
Á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 25. mars var ársskýrsla umhverfissviðs til umfjöllunar og lagði Íbúahreyfingin til breytingar á efnistökum í kaflanum um fráveitu. Í orðaskaki á fundinum lét bæjarstjóri í veðri vaka að Íbúahreyfingin væri að níða niður skóinn af...
Styrkir hækki til Stígamóta
Íbúahreyfingin hafði sitthvað að segja um styrkveitingar Mosfellsbæjar til Stígamóta í vikunni, fyrst í fjölskyldunefnd og síðan í bæjarstjórn. Styrki þarf að hækka. Um Stígamót gilda sömu rök og um Kvennaathvarfið. Þangað sækir fjöldi kvenna og karla úr Mosfellsbæ ár...
Íbúahreyfingin vill hækka styrki til Kvennaathvarfsins
Á síðasta fundi fjölskyldunefndar var ákveðið að hækka árlegan styrk Mosfellsbæjar til Kvennaathvarfsins úr 60 þúsund kr. í 100 þúsund. Hækkunin lét vel í eyrum þangað til að Íbúahreyfingin fór að grafast nánar fyrir um styrkveitingar sveitarfélaga í nágrenninu. Í...
Tillaga um hækkun styrkja til fjölskylduþjónustu
Íbúahreyfingin stóð í stórræðum í bæjarstjórn í vikunni eftir að ljóst varð hvað Mosfellsbær lætur árlega lítið af hendi rakna til fjölskylduþjónustunnar í formi styrkja. Á fundi bæjarstjórnar hafði bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar þetta um málið að segja: "Séu...
Lítill vilji til að draga úr áhrifum verksfalls tónlistarkennara
Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað áðan að bæta ekki nemendum í Listaskólanum kennslufallið fyrr í vetur nema að litlum hluta, þ.e. þeir sem þurfa að fara í mið- eða grunnpróf geta fengið aukatíma sem þeir greiða fyrir sjálfir. Íbúahreyfingin andmælti ákvörðuninni með...
Kallað eftir jafnræði á vettvangi sveitarstjórnarmála
Íbúahreyfingin sendi nýverið stjórn Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu bréf þar sem þess er óskað að SSH endurskoði samþykktir sínar með tilliti til 50. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 þar sem þeim framboðum sem náð hafa inn manni í sveitarstjórn er gert...
Skrafað og skeggrætt á fundi um Þingvallaveg
Hér má lesa lauslega samantekt á umræðum á íbúafundi í Reykjadal um deiliskipulag Þingvallavegar í Mosfellsdal 15. janúar sl. Fundurinn var haldinn af skipulagsyfirvöldum í Mosfellsbæ að ósk íbúa í þeim tilgangi að skýra ferlið og helstu óvissuþætti verkefnisins....
Tónlistarskólanemendur gætu átt von á uppbót
Mosfellsbær hefur nú bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem ætla að kanna hvort hægt sé að bæta tónlistarskólanemendum upp þá kennslu sem þeir urðu af vegna fimm vikna verkfalls kennara fyrr í vetur. Fyrsta skrefið í þá veru verður að óska eftir áliti Listaskóla...
2015 innan seilingar
Við óskum Mosfellingum öllum gleði og gæfu á nýju ári og þökkum ómetanlegan stuðning á árinu sem er að líða. Áramótaheit Íbúahreyfingarinnar er nokkuð augljóst, þ.e. að halda ótrauð áfram að vinna í þágu íbúa á vettvangi bæjarmála á árinu 2015....
Innviðina fyrst, áhugamálin svo!
Í byrjun desember samþykkti meirihluti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar fjárhagsáætlun næsta árs. Ljóst er að fjárhagurinn er knappur og skuldir sveitarfélagins yfir 120% af heildartekjum og því ekki úr miklu að moða en samt. Þegar staðan er erfið skiptir öllu að...
Ræða í tilefni fjárhagsáætlunar 2015
Íbúahreyfingin lagði fram breytingatillögu við fjárhagsáætlun 2015 - 2018 í bæjarráði 30. október sl. Við tókum í upphafi þann pól í hæðina að taka mið af því sem við yrðum áskynja í heimsóknum bæjarráðs í stofnanir og fyrirtæki Mosfellsbæjar nú um miðjan nóvember....
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ verður haldin 30. des kl 20:00 n.k í Reykjadal, Mosfellsdal. Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf. Uppfært 29. desember 2014. Aðalfundinum hefur verið frestað, nýtt fundarboð verður sent fljótlega.
Verkefnin framundan í Mosfellsbæ
Tillögur Íbúahreyfingarinnar í tengslum við fjárhagsáætlun 2015-2018. Íbúahreyfingin hefur nú lagt fram tillögur í bæjarráði að verkefnum sem hreyfingin telur brýnt að ráðast í eða hefja undirbúning að á næsta fjárhagsári 2015. Af nægu er að taka en að þessu sinni...
Án titils
Lýðræðis- og jafnaðarstefna Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fór fyrir lítið í dag þegar fulltrúar flokksins í bæjarstjórn greiddu atkvæði með tillögu sjálfstæðismanna og vinstri grænna um að hafna ósk Íbúahreyfingarinnar um að tilnefna fulltrúa í nefnd sem ætlað er að...
Brasilíska leiðin í samráðsmálum
Íbúahreyfingin lagði nýverið fram tillögu í bæjarráði um að gera íbúum kleift að taka þátt í gerð fjárhagsáætlunar. Tillagan hlaut jákvæðar undirtektir og sem fyrsta skref ætlar bæjarstjóri að ríða á vaðið og halda kynningarfund með íbúum um fjárhagsáætlun 2015. Í vor...
Samskiptavandi ríkis og sveitarfélaga
Á vettvangi sveitarfélaga heyrist oft kvartað yfir því að verkefni sem tekin hafa verið yfir frá ríkinu séu dýrari í rekstri en til stóð. Á undanförnum vikum hef ég heyrt nokkrar skýringar á þessu. Kostnaður vegna lagabreytinga sé ekki metinn að verðleikum og rekstur...
Fjárhagsáætlun 2015 – persónur og leikendur
Þessa dagana eru starfsmenn Mosfellsbæjar í óða önn að ljúka við drög að fjárhagsáætlun en hún segir til um í hvaða verkefni tekjum bæjarsjóðs og skattpeningum íbúa verður varið á næsta fjárhagsári. Kjörnir fulltrúar í nefndum og ráðum hafa enn ekki fengið að skoða...
Skólaskýrsla – Vinnuplagg eða glansmynd?
Nýlega var ársskýrsla skólaskrifstofu Mosfellsbæjar kynnt í bæjarstjórn. Um er að ræða greinargott og efnismikið plagg nema hvað þar vantar upplýsingar um þær miklu áskoranir sem skólayfirvöld í sveitarfélaginu standa frammi fyrir. Undirrituð sá sig knúna til að gera...
Af því bara ekki reglur um styrki
Skv. upplýsingum sem Íbúahreyfingin óskaði eftir á síðasta bæjarráðsfundi eru reglur um úthlutun styrkja af skornum skammti í Mosfellsbæ. Engar almennar reglur eru í gildi og aðeins 2 fagnefndir hafa samið sér reglur og viðmið um styrkveitingar. Nú er það svo að...
Íbúahreyfingin auglýsir eftir fulltrúum í nefndir
Á kjördegi 2014
Kjörstaður vegna bæjarstjórnarkosninganna er í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð og stendur kjörfundur frá kl. 09-22. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður á sama stað. Munið efitr að hafa með ykkur skilríki. Ef þig vantar akstur á kjörstað hringdu í síma 866-9376....
Mosfellsk menning
Í hvernig bæ viljum við Mosfellingar búa? Ætlum við að vera úthverfi í Reykjavík eða sjálfstætt bæjarfélag með sterkan staðarbrag? Hingað til hefur slagorðinu „Sveit í borg“ og hugmyndinni um heilsueflingarbæinn verið haldið á lofti. En hvað blasir við ferðalöngum sem...
Allt upp á borð – Kjósum X-M
Íbúahreyfingin tók sæti í fulltrúaráði Eirar haustið 2010. Eitt af því fyrsta sem Guðbjörg Pétursdóttir fulltrúi okkar gerði var að óska eftir því að fá að sjá fundargerðir stjórnar Eirar. Hún bað líka um að fá í hendur ársreikningana. Þessu var hafnað. Nú upphófst...
Spyrjum að leikslokum kjósandi góður
Nýlega birti Félagsvísindastofnun skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokka í Mosfellsbæ. Könnunin fór af stað áður en Íbúahreyfingin kynnti sitt framboð og gefa niðurstöður sem sýndu um 7% fylgi því ekki rétta mynd. Í síðustu kosningum fékk Íbúahreyfingin 15,2% atkvæða...
Kosning utan kjörstaðar í fullum gangi
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nú kosið utan kjörstaðar í Laugardagshöllinni ALLA daga kl. 10.00-22.00. Íbúahreyfingin hvetur þá sem ekki verða heima á kjördag til að nýta tækifærið og kjósa í Laugardalshöllinni. Hvert atkvæði telur og stundum getur munað 1 atkvæði á...
Enn vantar gagnsæi í Mosfellsbæ
Íbúalýðræði og gagnsæi var áberandi stefna hjá öllum flokkum í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Stjórnmálaflokkar í Mosfellsbæ voru þar engin undantekning. Fagnaði ég því mjög og var bjartsýn á framhaldið. Í mínum huga fellst íbúalýðræði í því að íbúar komi beint að...
Leiruvogur – náttúruperla í bæjarlandi
Eitt af því sem gerir Mosfellsbæ að góðum dvalarstað er mikil náttúrufegurð. Þetta á sérstaklega við um Leiruvog sem er að hluta til í Mosfellsbæ og að hluta í landi Reykjavíkur. Vogurinn er á náttúruminjaskrá en æskilegt væri að friðlýsa hann með öllu. Í lýsingu...
Vorkvöld við Leiruvoginn
Nú í vor lagði ég á hest og fór með franskan vin minn sem er í heimsókn á landinu til að sýna honum eina af útivistarparadísum okkar Mosfellinga, Leiruvoginn. Við riðum niður Mosfellsdalinn niður að hesthúsahverfinu í átt að Korpuósum í blíðskaparveðri. Náttúran...
Fagmennska ráði för í atvinnumálum
Það hefur lengi loðað við Mosfellsbæ að hér eru fáir vinnustaðir og atvinnutækifæri. Fyrir bæjarsjóð er þetta erfið staða þar sem bærinn verður af skatttekjum sem hann ella hefði fengið, auk þess sem af því hlýst óhagræði fyrir íbúa að sækja vinnu í önnur...
Kjósendur eiga val
Reynslan hefur kennt okkur að loforð stjórnmálaflokka fyrir kosningar gefa litlar vísbendingar um efndir að þeim loknum. Það er því stefna Íbúahreyfingarinnar að lofa engu nema því að vinna af alúð og trúmennsku að lýðræðisumbótum og gegnsæi í stjórnsýslu og...
Að forgangsraða
Mosfellsbær er fallegur bær í örum vexti. Meðalaldur íbúa er frekar lágur og barnafjölskyldur virðast sækja hingað. Hér er gott og fjölbreytt umhverfi, þokkaleg þjónusta og öflug félags- og tómstundastarfsemi. Nú er stutt í kosningar. Þeim flokkum sem bjóða fram...
Skipulag geri ráð fyrir fötlun
Íbúahreyfingin leggur áherslu á að fatlaðir einstaklingar fái alla þá samfélagsþjónustu sem þeir þurfa til að lifa mannsæmandi, sjálfstæðu og áhyggjulausu lífi. Fatlaðir eiga ekki að þurfa að upplifa þjónustu við sig sem ölmusu heldur á skipulag og innviðir...
Hvernig Mosfellsbæ vilt þú?
Í síðustu sveitarstjórnarkosningum vorum við Mosfellingar heppnir. Hér buðu sig fram vaskir bæjarbúar sem vildu sjá lýðræðislegri og opnari stjórnun bæjarins og auka þannig möguleika á góðu, sanngjörnu samfélagi. Já,við vorum verulega heppin, forystufólk...
Knattspyrnuhús
Ert þú fylgjandi byggingu fjölnota íþróttahúss í Mosfellsbæ? Þetta er ein af þeim spurningum sem DV spyr frambjóðendur í Mosfellsbæ í sínum kosningaleik. Enginn frambjóðandi hefur þorað að svara þessari spurningu neitandi þar sem mikill áhugi virðist vera fyrir slíkri...
Er löglegt að féfletta gamalmenni?
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ sem býður fram M lista í komandi bæjarstjórnarkosningum hyggst beita sér í málefnum aldraðra, m.a. málefnum Eirar. Mér hefur í framhaldi af því verið boðið að taka þátt í því verkefni og heiðurssætið á framboðslistanum sem ég hefi þegið. Í...
Athugasemd við frétt
Í hádegisfréttum RÚV þann 20. maí var sagt frá brotthvarfi Jóns Jósefs Bjarnasonar af lista Íbúahreyfingarinnar. Við sendum eftirfarandi athugasemd við fréttina: Ágæta fréttastofa. Í hádegisfréttum RÚV í dag var sagt frá því að óskum fyrrum frambjóðanda...
Blað Íbúahreyfingarinnar
Á morgun verður byrjað að bera blað Íbúahreyfingarinnar í hús. Hér má nálgast blaðið á PDF-formi. Blað Íbúahreyfingarinnar. Í blaðinu eru greinar eftir frambjóðendur og upplýsingar um áherslur Íbúahreyfingarinnar fyrir kosningar.
Hello world!
Welcome to WordPress. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!
Framboðslisti Íbúahreyfingarinnar 2014
Sigrún H. Pálsdóttir leiðir lista Íbúahreyfingarinnar Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ býður fram öðru sinni í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Sigrún H. Pálsdóttir verkefnisstjóri leiðir listann og tekur hún við keflinu af Jóni Jósef Bjarnasyni upplýsingatækniráðgjafa...
Fagmennsku í fyrirrúm í skólamálum
Við vitum öll að besta veganesti barnanna okkar út í lífið er góð menntun. Góð menntun er hins vegar ekki sjálfgefin því hún þarf rétta umgjörð og skiptir þar miklu að ráðandi stjórnmálaöfl haldi vöku sinni og sjái til þess að húsnæði sé fyrir hendi og skapi aðstæður...
Innanbæjarvagn
Innanbæjarsamgöngur í Mosfellsbæ eru okkur í Íbúahreyfingunni mjög hugleikin og höfum við áhuga á að vinna að úrbótum á þeim. Á opnum fundi skipulagsnefndar hinn 18. mars á þessu ári þar sem fjallað var um almenningssamgöngur spurði ég Einar Kristjánsson sviðstjóri...
Stofnendur Eirar gangist við ábyrgð
Eitt af þeim málum sem farið hefur ofurhljótt í samfélaginu er nauðasamningur Eirar við íbúa í á annað hundruð öryggisíbúðum í Reykjavík og Mosfellsbæ. Þegar málið er skoðað setur mann hljóðan því með samningnum á nú gamla fólkið að taka á sig kostnaðinn af vítaverðri...
Vertu með í að móta samfélagið!
Taktu við keflinu!
Langar þig að hafa áhrif á samfélagið án þess að skrá þig í hefðbundinn stjórnmálaflokk? Íbúahreyfingin er óháð íbúaframboð sem bauð fyrst fram í síðustu sveitarstjórnarkosningum og varð upp úr því, annað stærsta stjórnmálaaflið í Mosfellsbæ. Jón Jósef Bjarnason hefur...
Bókun vegna álits innanríkisráðuneytis
Á 597. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar var lagt fram álit innanríkisráðuneytisins þar sem fram kemur að ákvæði sveitarstjórnarlaga séu fortakslaus að því er varðar sjálfskuldarábyrgðir sveitarfélaga á skuldum einkaaðila. Svo virðist sem meirihluti bæjarstjórnar ætli...
Stuðningur við stjórnarskrármálið – Fréttatilkynning
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ lýsir fullum stuðningi við aðgerðir Dögunar, IMMI, Pírata, Radda fólksins, SaNS og Stjórnarskrárfélagsins í stjórnarskrármálinu: „Við heitum á meiri hluta Alþingis að virða afdráttarlausan vilja kjósenda í stjórnarskrármálinu, eins og hann...
Fréttatilkynning frá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ
Ágæti viðtakandi. Nokkrum dögum fyrir jól komst innanríkisráðuneytið að þeirri niðurstöðu að sú ákvörðun Mosfellsbæjar að gangast í ábyrgð vegna skulda Helgafellsbygginga hf. hafi ekki verið í samræmi við lög. Þetta kemur fram í meðfylgjandi áliti sem ráðuneytið hefur...
Svör Mosfellsbæjar um villidýrasafn
Þann 4. október sendu fulltrúar Íbúahreyfingarinnar spurningar varðandi villidýrasafn til bæjarráðs Mosfellsbæjar. Í dag bárust eftirfarandi svör: 1. Hvaða skuldbindingu hefur undirritun viljayfirlýsingarinnar í för með sér fyrir Mosfellsbæ? Engar aðrar en fram koma í...
Íbúahreyfingin krefst afsagnar stjórnar Eirar
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ krefst þess að stjórn Eirar axli ábyrgð á greiðsluþroti stofnunarinnar með því að víkja. Eir skuldar átta milljarða, þar af eiga heimilismenn tvo milljarða sem þeir hafa lagt inn sem búsetutryggingu. Þeir fjármunir kunna að glatast. Í...
Ung vinstri græn álykta um píkusafn
Ung vinstri græn sem héldu landsfund um helgina ályktuðu með hugmynd Íbúahreyfingarinnar um píkusafn. Við þökkum stuðninginn! „vi. Píkusafn í Mosfellsbæ! Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn í Borgarfirði 5. - 7. október 2012, tekur undir hugmynd...
Erindi til bæjarráðs Mosfellsbæjar varðandi villidýrasafn
Mosfellsbæ 4. Október 2012 Erindi til bæjarráðs Mosfellsbæjar. Einnig sent á aðila sem eru í eða sitja fundi fræðslunefndar, menningarmálanefndar og þróunar- og ferðamálanefndar til upplýsingar. Á hátíðarbæjarstjórnarfundi hinn 9. ágúst 2012 var samþykkt að...
Píkusafn í Mosfellsbæ – Ályktun aðalfundar
Íbúahreyfingin hélt aðalfund sinn í kvöld, 25. september og var eftirfarandi ályktun samþykkt af þorra fundarmanna: Íbúahreyfingin hefur ákveðið að beita sér fyrir opnun Píkusafns – Vulva Museum - í Mosfellsbæ. Á sérstökum hátíðarfundi bæjarstjórnar, í tilefni 25 ára...
Hver ber ábyrgð á einelti?
Ýma tröllastelpa er aðalpersónan í bók sem fjallar um einelti og er samin í því skyni að berjast gegn því. Bókinni hefur verið dreift í skóla landsins í 10 ár og Olweusar-verkefnið og Regnbogabörn, sem bæði berjast gegn einelti, hafa tekið þátt í dreifingu og notkun...
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar verður haldinn í Brekkunni, Álafossvegi 27, þriðjudaginn 25. september kl. 17.30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir eru velkomnir á aðalfundinn!
Mosfellingum allar bjargir bannaðar gegn spilltri klíku – Fréttatilkynning
Á bæjarráðsfundi nýverið ákvað bæjarráð að veita bæjarstjóra leyfi til þess að ganga til samninga við Landsbanka Íslands vegna kröfu hans um lúkningu á sjálfskuldarábyrgð bæjarfélagsins á skuldabréfi Helgafellsbygginga ehf. Sjálfskuldarábyrgðin er ólögleg samkvæmt...
Fréttatilkynning frá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ vegna Helgafellsbyggingamálsins
Í gær samþykkti bæjarráð Mosfellsbæjar með þremur samhljóða atkvæðum að heimila bæjarstjóra að ganga frá samningi við Landsbankann um uppgjör ábyrgðar bæjarins á láni Helgafellsbygginga ehf. Fulltrúi Íbúahreyfingarinnar, Jón Jósef Bjarnason, sem nú hefur stöðu...
Mosfellingur, þú skuldar!
Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2011 hefur nú verið lagður fram. Í ljósi þess að Mosfellsbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga hefur haft umfjöllunar vegna bágrar fjárhagsstöðu er ekki óeðlilegt að bæjarbúar gefi málinu...
Bókun vegna ársreiknings Mosfellsbæjar 2011
Íbúahreyfingin lagði fram eftirfarandi bókun við ársreikning Mosfellsbæjar 2011 á fundi bæjarstjórnar hinn 11. apríl. Fundargerðina má sjá hér: http://mos.is/Stjornsysla/Lydraedi/Fundargerdir/ „Bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar óskar bókað: Mosfellsbær gefur út eina...
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar
Aðalfundur Íbúahreyfingarinnar er haldinn laugardaginn 14. janúar kl. 16.00 í Brekkunni, Álafossvegi 27. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir!
Lýðræði í kreppu – birtingarmyndir í Mosfellsbæ
Í Kastljósi í liðinni viku var umfjöllun sem kallaðist „Lýðræði í kreppu“. Þar kom fram hvernig traust á stjórnmálamönnum hrundi með fjármálaloftköstulunum árið 2008. Í þættinum voru birtar myndir af kynningarfundi lýðræðisnefndar Mosfellsbæjar sem haldinn var á...
Íbúahreyfingin sendir erindi til Persónuverndar – Fréttatilkynning
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ hefur beðið um álit Persónuverndar á gildissviði persónuverndarlaga hvað varðar upplýsingar um afskriftir á lögboðnum gjöldum lögaðila til sveitarfélags og hvort að birting á slíkum upplýsingum falli undir persónuverndarlög. Undanfari...
Í fangelsi fyrir Mosfellinga?
Í bæjarstjórn stendur nú yfir barátta um gagnsæi. Liðin sem takast á eru annarsvegar Íbúahreyfingin, sem með athöfnum og orðum berst fyrir rétti Mosfellinga til upplýsinga frá eigin bæjarfélagi og hins vegar Sjálfstæðisflokkur, VG og Samfylkingin, sem við skulum kalla...
Eru fyrirtæki persónur?
Í mars 2011 tók bæjarstjórn Mosfellsbæjar ákvörðun um afskrift viðskiptakrafna í samræmi við tillögu fjármálastjóra. Við afgreiðslu málsins lagði Jón Jósef Bjarnason, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar, til að allar upplýsingar um afskrifaðar skuldir lögaðila yrðu...
Af hverju nennir fólk ekki að mæta á fundi?
Ég var að koma af opnum fundi um drög að lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar. Þar sem ég komst ekki á mælendaskrá á fundinum ætla ég að senda lýðræðisnefndinni bréf með nokkrum hugmyndum um lýðræðisvæðingu og deila því með ykkur þar sem lýðræðið varðar okkur öll. Í fyrsta...
Fjöldi bæjarfulltrúa
Ein leið til að efla lýðræði á sveitarstjórnarstigi er að fjölga bæjarfulltrúum. Við það eykst þátttaka íbúa í mótun nærumhverfisins og starf nefnda bæjarfélagsins styrkist. Á Íslandi hafa sveitarstjórnir lengi verið fámennar þar sem meðalfjöldi bæjarfulltrúa er 6,6....
Blað og könnun um lýðræðisstefnu
Í dag, fimmtudaginn 15. september, og á morgun verður fyrsta blaði Íbúahreyfingarinnar dreift á öll heimili í Mosfellsbæ. Tilefni útgáfunnar er sú að nú liggja fyrir drög að lýðræðisstefnu Mosfellsbæjar og Íbúahreyfingin vill hvetja Mosfellinga til að kynna sér drögin...
Af starfsemi Íbúahreyfingarinnar
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ hefur ekki setið með hendur í skauti fyrsta ár kjörtímabilsins, hún hefur beitt sér í nær öllum málum. Fljótlega eftir kosningar þurfum við að beita okkur vegna misbeitingar valds. Sjálfstæðisflokkur og VG höfðu sent út pólitískan áróður í...
Meginmál gagnsæisyfirlýsingar Íbúahreyfingarinnar
Öll gögn í umsjón sveitarfélagsins, stofnanna þess, og fyrirtækja í eigu þess, að hluta eða öllu leiti skulu vera opin og aðgengileg almenningi án hindrana, nema brýnar ástæður séu til annars. Skilgreindar verða skýrar viðmiðunarreglur um hvað teljast gildar ástæður...
Takið þátt!
Fyrir síðustu kosningar tók ég þátt í stofnun Íbúahreyfingarinnar þar sem mér fannst vera þörf á breytingum, en ég gat ekki hugsað mér að styðja neinn af fjórflokkunum. Ég íhugaði það lengi vel að bjóða mig fram, af því að ég vildi hafa áhrif á mitt umhverfi og...
Mosfellsbær rekinn með tapi þrjú ár í röð og safnar skuldum – tillaga að mótvægisaðgerð
Eftirfarandi grein birtist á bloggi Þórðar Bjarnar Sigurðssonar. Hér er birtur fyrri hluti greinarinnar en greinina má lesa í heild á bloggi Þórðar: Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd í Mosfellsbæ frá árinu 2002. Á kjörtímabilinu 2002 - 2006 var flokkurinn með...
Opinn fundur um lýðræði og gagnsæi
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ boðar til opins fundar um gagnsæi og lýðræði í Listasalnum, Kjarna, Þverholti 2, miðvikudaginn 25. maí kl. 20.00 - 22.00 Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Leiðir til að styrkja og auka lýðræði í sveitarfélögum Kristinn Már Ársælsson,...
Hagsmunagæsla meirihlutans. Fyrir hverja?
Í síðasta Mosfellingi birtist grein eftir undirritaða um meinta ólöglega sjálfskuldarábyrgð Mosfellsbæjar á láni til Helgafellsbygginga og á sömu síðu var grein frá meirihluta í bæjarstjórn um sama mál þar sem ákveðins misskilnings virðist gæta. Íbúahreyfingin, sem...
Gagnsæi launa og samningsumboð.
Íbúahreyfingin hefur reynt að vekja athygli á ógagnsæi gagnvart launafólki, en upplýsingar um afdrif töluverðs hluta launa þess er vísvitandi haldið frá því beinlínis til þess að blekkja og koma í veg fyrir aðhald og gagnrýni. Af þessum gjöldum má nefna greiðslur í...
Gagnsæi sveitarfélaga
Íbúahreyfinginn hefur verið mjög virk í bæjarmálum frá því hún hlaut kosningu fyrir rúmu ári síðan. Þó hún láti sér öll mál varða, hefur hún sérstaklega beitt sér fyrir gagnsæi en við í Íbúahreyfingunni teljum að gagnsæi sé forsenda þess að íbúarnir hafi möguleika til...
Opinn hugbúnaður
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir Mosfellsbæ, lagði Íbúahreyfingin m.a. til að bæjarfélagið færi kerfisbundið í að skipta tölvukerfum sínum yfir í opinn hugbúnað, en með því má spara ótaldar milljónir árlega. Sparnaðurinn nær ekki bara til bæjarfélagsins, heldur sparar...
Mannréttindi fótum troðin í Mosfellsbæ
Viðmiðunarupphæð fjárhagsaðstoðar var á dagskrá fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar þann 25. janúar 2011. Á fundinum lagði fulltrúi Íbúahreyfingarinnar það til að afgreiðslu málsins yrði frestað í ljósi þess að von var á birtingu neysluviðmiða af hálfu...
Dýrkeypt hugmyndafræði
Í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2011-2014 gerði Íbúahreyfingin athugasemd við að Mosfellsbær væri í sjálfskuldarábyrgð á láni til byggingafyrirtækis í einkaeigu upp á 246 milljónir kr. Tillaga Íbúahreyfingarinnar um að senda málið til Innanríkisráðuneytis var...
Íbúahreyfingin fer fram á afsögn kjörinna fulltrúa – Fréttatilkynning
Í byrjun febrúar 2011 barst bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ lögfræðiálit frá LEX sem sveitarfélagið lét gera vegna fyrirgrennslan Íbúahreyfingarinnar á lögmæti sjálfskuldarábyrgðar Mosfellsbæjar á láni Landsbanka til Helgafellsbygginga upp á 246 milljónir. Í innihaldi...
Bókanir Íbúahreyfingarinnar varðandi sjálfskuldarábyrgð
Jón Jósef Bjarnason, bæjarfulltrúi, bókaði eftirfarandi á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 16. febrúar 2011 vegna umfjöllunar um sjálfskuldarábyrgðar bæjarins á láni til einkaaðila: Bókun 1 Í námskeiðsefni Sambands Ísl. sveitarfélaga Hlutverk og ábyrgð...
Fundir bæjarstjórnar í Mosfellsbæ hljóðritaðir – Fréttatilkynning
Íbúahreyfingin leggur áherslu á aukið íbúalýðræði og gegnsæa stjórnsýslu. Á þeim forsednum hefur Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ starfað að því að fundir bæjarstjórnar verði hljóðritaðir og gerðir almenningi aðgengilegir. Miðvikudaginn 16. febrúar stendur til að hljóðrita...
Fundaskrá Íbúarhreyfingar í haust
Málefnafundir Íbúahreyfingarinnar eru öllum opnir og eru þeir haldnir í Brekkunni, Álafossvegi 27. Við erum búin að gera áætlun um fundi fram að jólum, með fyrirvara um breytingar. Mánud. 1. nóv. kl. 18.00 Málefnafundur Laugard. 13. nóv. 10-17 Vinnudagur...
Íbúahreyfingin skipar í nefndir
Í megin áherslum Íbúahreyfingarinnar fyrir kosningar kemur fram að ráða eigi fólk í nefndir á faglegum forsendum. Í samræmi við það auglýsti Íbúahreyfingin eftir fagfólki í nefndarstörf og óhætt er að segja að viðtökurnar hafi farið fram úr björtustu vonum.
Golfklúbburinn Kjölur býður til bæjarstjórnargolfs
Fulltrúum Íbúahreyfingarinnar barst svohlóðandi tölvupóstur frá Golfklúbbinum Kili í Mosfellsbæ: ,,From: Golfklúbburinn Kjölur [mailto:gkj@gkj.is] Sent: 31. ágúst 2010 09:33 To: undisclosed-recipients: Subject: Bæjarstjórnargolf á föstudaginn 3. sept. kl. 16:30...
Þaggað niður í lýðræðinu
Netið er öflugt tæki til að opna stjórnsýsluna og afnema þá leyndarhyggju sem hefur verið ríkjandi í íslenskum stjórnmálum. Netið opnar íbúum aðgang að stjórnsýslunni og ýmir hópar, t.d. fatlaðir, aldraðir og einstæðir foreldrar, sem áður áttu erfitt um vik að mæta á...
Íbúahreyfingin auglýsir eftir fulltrúum í nefndir
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ leggur áherslu á að skipað verði í nefndir á faglegum forsendum. Því auglýsir Íbúahreyfingin eftir aðal-, vara- og áheyrnarfulltrúum í eftirtaldar nefndir:
Fjölskyldunefnd
Fræðslunefnd
Íþrótta- og tómstundanefnd
Menningarmálanefnd
Skipulags- og byggingarnefnd
Umhverfisnefnd og
Þróunar- og ferðamálanefnd
Hljóðupptökur bannaðar í Mosfellsbæ! – Fréttatilkynning
Á fundi 539. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar 30.06.2010 bannaði forseti bæjarstjórnar og oddviti VG áheyranda á vegum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ að hljóðrita fundinn. Forsetinn sagðist ekki þurfa að rökstyðja þá ákvörðun sína en hljóðritun var leyfð á 538....
Ráðning bæjarstjóra – Fréttatilkynning
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ, sem nú er næst stærsta stjórnmálaaflið í bænum, gerðu að tillögu sinni að fylgt yrði mannauðsstefnu Mosfellsbæjar við ráðningu bæjarstjóra og að starfskjör hans yrðu einnig endurskoðuð. Þessi tillaga var felld af meirihluta Sjálfstæðismanna og Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs sem lögðu til að Haraldur Sverrisson yrði ráðinn bæjarstjóri.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar á hljóðskrám
Íbúahreyfingin tók upp fyrsta fund bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, eftir að það hafði verið leyft með kosningu. Hér má hlusta á hljóðskrár fundarins.
Auglýst eftir fulltrúum í nefndir
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ leggur áherslu á að skipað verði í nefndir á faglegum forsendum. Því auglýsir Íbúahreyfingin eftir aðal- og varafulltrúum í nefndir.
Bókun M lista um ráðningu bæjarstjóra
Bókun fulltrúa M lista varðandi ráðningu bæjarstjóra Mosfellsbæjar á fundi bæjarstjórnar þann 16. júní 2010.
Með vísan til mannauðsstefnu Mosfellsbæjar var lögð fram tillaga á fundi bæjarstjórnar um að staða bæjarstjóra yrði auglýst og starfskjör endurskoðuð. Því miður fór svo fyrir tillögunni að henni var hafnað af sitjandi meirihluta.
Mosfellsbær í ábyrgð fyrir skuldum einkafyrirtækis
Við skoðun á ársreikningi Mosfellsbæjar 2009 kemur í ljós að sveitarfélagið hefur tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð vegna 246 milljón króna láns sem Helgafellsbyggingar ehf. tóku á árinu 2009. Á móti sjálfskuldarábyrgðinni hefur sveitarfélagið tekið tryggingu í formi veða í tilteknum lóðum í Helgafellshverfi.
Hugmyndum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um samstjórn var hafnað
Yfirlýsing frá Íbúahreyfingunni í Mosfellsbæ vegna fréttatilkynningu frá Mosfellsbæ:
Hugmyndum Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ um samstjórn hafnað
Íbúafundur
Boðað til fyrsta íbúafundar Íbúahreyfingarinnar á mánudagskvöld, annað kvöld, kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn og efni fundarins er næsti bæjarstjórnarfundur.
Takk fyrir stuðninginn!
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ þakkar stuðninginn sem framboðið fékk í sveitarstjórnarkosningum. Einn fulltrúi er nú í bæjarstjórn og Íbúahreyfingin er annað stærsta stjórnmálaaflið í Mosfellsbæ, aðeins um mánuði eftir að stofnað var til framboðsins. Það er athyglisvert...
Mannauður í Mosfellsbæ
Ég starfa við endurhæfingu, heilsueflingu og endurreisn, því er lýðheilsa mér hugleikin. Jákvæð líðan er uppbyggjandi afl, bæði andlega og líkamlega. Samfélag þar sem íbúar eru virkjaðir til samráðs og þátttöku á lýðræðisleg um vettvangi eflir áþreifanlega jákvæðni,...
(Ó)gagnsæi í Mosfellsbæ
Það er áberandi nú fyrir kosningar í Mosfellsbæ að mikill áhugi hefur gripið um sig hjá öllum stjórnmálaflokkunum um að auka íbúalýðræðivog gagnsæi. En hvað er átt við með gagnsæi? Samkvæmt skilningi okkar fellst gagnsæi í því að gögn sem liggja á bak við ákvarðanir í...
Tími aðhalds er framundan
Kæri íbúi, á laugardaginn hefur þú val, þú getur kosið Íbúahreyfinguna í Mosfellsbæ og tekið í taumana á alræði fjórflokksins sem á ekki erindi í bæjarmálin. Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritsjóri Morgunblaðsins er í uppgjöri við fortíðina og byrjar bók sína svo: „Ég...
Ræða Þórðar Björns Sigurðssonar í Hlégarði í kvöld
Fundarstjóri, ágætir íbúar. Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ býður nú fram í fyrsta sinn. Þó að saga Íbúahreyfingarinnar sé ekki löng má segja að aðdragandinn að stofnun hennar eigi sér djúpar rætur. Þær aðstæður sem nú ríkja í samfélaginu mynduðust ekki á einni nóttu. ...
Íbúalýðræði hafnað í Mosfellsbæ
Í kvöld var haldinn framboðsfundur í Hlégarði í Mosfellsbæ. Til stóð að halda fundinn með nokkuð nýstárlegu fundarfyrikomulagi, það er að loknum framsöguræðum gæfist bæjarbúum tækifæri til spurninga og viðræðna við frambjóðendur við borð framboðanna í sölum Hlégarðs....
Framboðsfundur í Mosfellsbæ
Framboðin til bæjarstjórnarkosninganna í Mosfellsbæ boða til sameiginlegs framboðsfundar með íbúum bæjarins. Fundurinn verður haldinn í Hlégarði fimmtudaginn 27. maí og hefst kl. 20:00. Að loknum framsöguræðum gefst bæjarbúum tækifæri til spurninga og viðræðna við...
Hagsmunaskráning frambjóðenda Íbúahreyfingarinnar
Í grein Kristínar I. Pálsdóttur, ,,Áskorun til sveitarstjórnarfólks í Mosfellsbæ" sem birt var á Smugunni þann 24.5.2010 segir m.a.: ,,Ein af niðurstöðum Rannsóknarskýrslu Alþingis er að spilling sé mun víðtækari en áður hefur verið viðurkennt á Íslandi....
Breytt dagsetning og staðsetning á framboðsfundi
Ekki verður af framboðsfundi sem Íbúahreyfingin hefur boðað til í Listasalnum í Kjarna, miðvikudagskvöldið 26. maí nk. Fyrirhugaður er sameiginlegur framboðsfundur í Hlégarði fimmtudagskvöldið 27. maí nk.
Íbúafundur
Íbúahreyfingin boðar til framboðsfundar miðvikudagskvöldið 26. maí kl. 20.00 – 22.00. Fundurinn verður haldinn í Listasalnum í Kjarna. Gert er ráð fyrir framsögu frá hverju framboði. 5 mínútur hámark. Í framhaldi fari fram umræður og opnað fyrir spurningar frá...
Skilaboð frá oddvita
Kæru íbúar. Öll höfum við fylgst með því sem hefur verið að gerast í þjóðfélaginu undanfarið með undrun og óbragð í munninum. Var þetta virkilega svona og er þetta virkilega svona enn? Hvað getum við gert til þess að breyta þessu? Fyrir mér er ein af megin ástæðunum...
Áherslur Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ er ákjósanlegur valkostur fyrir Mosfellinga í komandi kosningum. Íbúahreyfingin mun beita sér fyrir auknu íbúalýðræði og umræðu um málefni bæjarins. Til að mynda viljum við að tiltekinn hluti íbúa geti kallað fram íbúakosningu um einstök...
Okkar megin áherslur eru:
Aukið íbúalýðræði Íbúakosning fari fram um einstök málefni óski 10% kosningabærra íbúa eftir því eða tveir fulltrúar í bæjarstjórn Verði máli vísað í íbúakosningu fari fram hlutlaus og fagleg kynning á því máli sem um ræðir Aukin umræða um málefni bæjarins og hlustað...